Það er stundum skrítið að
vera til. Skrítið að finna og vera til. Í
öllu skrítna draslinu sem fyrir augu ber.
Allsber.
11.desember 2003
< Þetta er mynd af heimskingja. Heimskasta fólk í heimi eru þeir sem æfa box, t.d. ólympíska hnefaleika. Maður myndi halda að heimskari væri þeir sem fremdu vopnuð rán á íslandi eða þeir sem eru kynofbeldismenn, en svo er ekki. Ofbeldismenn af slíku tagi eru réttdræpir en þeir vita æði oft hvað þeir eru að gera og stundum hvaða afleiðingar það getur haft. Þeir sem æfa box hinsvegar mæta reglulega til að láta lemja sig í hausinn og til að lemja aðra í hausinn. Það eitt er svo heimskulegt að það þarf ekki fleiri orð. En það sem mér finnst persónulega leiðinlegt við þetta er að ungt fólk lætur fram hjá sér fara fréttir eins og þessa og heldur áfram að valda sjálfum sér og öðrum óbætanlegum skaða, tapi á heilsu og vitsmunum. Maður getur ekki annað en kennt í brjósti um þetta heimska fólk sem lætur lemja sig og verður fyrir vikið enn heimskara.
30. nóvember 2003
Já seisei. VIð fórum á jólahlaðborð á Fiðlaranum og átum höfrungakjöt og fleira. Þetta var rosalega vel útilátið en samt ekki betra en það að ég skilaði öllu í vaskann á Fiðlaranum. Var eitthvað þreyttur vinurinn... Fórum heim strax eftir desertinn meðan allir aðrir fóru og skemmtu sér. > Ég verð fyrir sunnan yfir jólin, fyrstu jólin hjá tengdó og mig hlakkar mjög mikið til. Reyndar verður erfitt að vera á öðru landshorni en Pétur minn en svona er þetta. Ég hringi í hann á aðfangadagskvöld og spyr hvað hann fékk í jólagjöf. > Guffa útskrifast 20. des og þá verður gaman gaman. > Vinur minn Trausti Dagsson ljósmyndari bað okkur að sitja fyrir hjá sér við æfingar um daginni og eru myndirnar hér efst á síðunni tekar af honum í stúdíóinu. Næstum allar myndir af mér sem eru á kip.is eru teknar af Trausta. Trausti er virkilega fær ljósmyndari.
12. nóvember 2003
Nú
er ekkert að ske að viti frekar en fyrri daginn. Pétur
er hjá mér aðra hverja helgi og hinar helgarnar
tekur maður því rólega. Ætlum
á Hjónaball á Breiðumýr á
laugardagskvöld. Gígja kemur á föstudag
og hittir Jón sinn og sjálfsagt mun maður
sjá eitthvað. Tölvan mín er búin
að vera biluð í langan tíma núna
og er þetta dæmigert fyrir mann eins og mig. Ég
vinn sem kerfisfræðingur en hef ekki dug í
að gera við mína eigin vél. Reyndar er
búinn að bilanagreina og minnið í henni
er bilað.
?. október 2003
Ég, Guffa og Teddi fórum í fjallgöngu
í gærkveldi. gengið var upp í skátaskála
sem heitir "Gamli" og er í fjallinu fyrir ofan
Kjarnaskóg. Teddi eldaði svo núðlusúpu
handa okkur í "Gamla". Það er lítið
að frétta, Guffa fór suður í Giftingu
um síðustu helgi og við Pétur slöppuðum
af. Lílfið í Eyjafirði er ágætt.
Dýrt að reka bíl.
8. október 2003
Guffa
varð tvítug á föstudaginn var og skruppum
við suður um helgina. Með okkur var maður að
nafni Doddi, löngum þekktur fyrir að eiga 400hp
Bronco og mæta með bílinn á rúntinn
óþekkjanlegan af aur og drullu. Á heimleiðinni
tók ég upp í staðarskála 2 lúsablesa
sem áttu bilaðan bíl. Rigning alla leið
heim og hálka á Öxnadalsheiði. Kringlan
er alltaf jafn merkilegur staður. Þetta er sá
staður í Reykjavík þar sem maður
ratar eitthvað. Mér finnst reyndar Kringlan frekar
vinaleg. Ég fæ stundum innblástur þar,
uppljómanir, fer á flug í huganum og klæjar
í puttana að hafa ekki ferðavél til að
skrifa niður vangaveltur mínar. Það er
þarna kaffihús sem ég man aldrei hvað
heitir. Þar má reykja. Það er helst að
frétta úr Eyjafirði að við erum búin
að koma okkur þokkalega fyrir nema hvað Heimir
(sem á húsið) er ekki búinn að
gera tengingar fyrir þvottavélina og er fatahrúgan
orðin svo stór að það má bjóða
gestum að gista á henni. ÖrbylgjuInternetloftnetið
er komið ofan á hús en ég á
eftir að leggja CAT5 um húsið og það
er vonlaust dæmi, engin laus rafmagnsrör og ekki
greið leið milli risa. Sennilega verður frágangurinn
á þessu hráslagalegur. En það
er fyir öllu að redda þessu svo maður komist
aftur á háhraðatengingu.
23. september 2003
Eyfirðingar! VIð Guffa gerumst Eyfirðingar
frá og með næstu mánaðarmótum.
Holtagatan sem annars er yndisleg í alla staði er
allt of lítil fyrir 2. VIð flytjum 10 km inn í
fjörð í íbúð í húsi
sem heitir Örk.
12. september 2003
Síðustu helgi fór ég
í göngur í Svarfaðadal og á réttarball
þar. Það var magnað. Fjöllin þar
eru máttug og bera Svarfdælingar þess merki
að fá kraft og gáfur frá þessum
mikla magnþrungna fjallasal. Við dvöldum yfir
helgina á Hofsá í margmenni
en var það flest afkomendur Gísla og Heiðbjartar.
Örlæti og náungakærleikur er gömlum
fallegum íslenskum sveita sið er þarna í
hávegum hafður og geislar þetta fólk
af heilbrigði í alla staði.. Þar kynntist
ég Trausta Þórissyni, sem er bóndinn
á bænum og mynduðust með okkur einhver
bönd þar sem við vorum á mjög svo
sömu tíðni í skoðunum og lífsspeki.
Þar sem ég hef haldið drykkju í algjöru
sögulegu lágmarki brá ég á
það ráð að þiggja nokkra sopa
úr gagnamannafleyg og urðu næstu klukkutímar
þar á eftir góðir. Við Trausti sátum
undir svölum og ræddum um heima og geyma þar
til að heimasætan rak okkur í fjós með
harðri hendi. Fjósatíminn varð mjög
áhugaverður vegna ölvunar en ég vil kenna
þessum nýju tækjum um, þetta er allt
saman tölvutengt og ekkert líkt því
sem ég þekki úr minni sveit. Þetta
var svo flókið að það þurfti
mikinn bjór til að skilja þetta enda dróg
bóndinn upp bjórdós úr hverju skúmaskoti
fjóssins. Heimasætunni þótti ekki
handbragðið alltaf sniðugt, t.d. þegar ég
snéri mjaltatækjunum öfugt og víxlaði
þeim á spenum. Allt tækjunum að kenna,
ekki koníaksins sök en Trausti hló að
öllu saman. Mörg andlit þessa helgi standa eftir
í minni mínu og munu þar lifa að eylífu,
amen.
5. ágúst 2003
Nú
er sumarfríið búið, síðasti
dagur þess í dag. Versló fór vel
hér á Ak, foreldrar og systur Guðfinnu komu
og allt saman fínt. Ég fór uppá
Súlur með Guðfinnu um daginn og mæli ég
með þeirri skemmtun. Það er gott að
reikna með góðum tíma í þetta,
vegna þess að það tekur svipað langan
tíma að fara niður fjallið eins og upp. Ég
var að versla vetrardekk undir Galantinn og fékk
20% afslátt vegna þess að það er
hásumar. Sniðugt? Æ ég hef ekki baun
að segja, bless.
25. júlí 2003
Enn
í fríi, staddur í Rvík. Búinn
að taka 130 myndir
á hringferðinni, mest allt fyrir austan. Er að
hugsa um að drífa mig í föt, skreppa
í sund og líta svo í heimsókn til
tengdó í laugardalnum.
Ég vona að það rigni ekki í dag,
ég ætla að fara á Súlfistann
og máski í brúnkuklefa í Lindarsól.
Þið sem viljið kíkka á myndir úr
ferðinni smellið
hér.
18. júlí 2003
Þetta er svona. Ég er í
sumarfríi, búinn að vera með Pétur
í rúma viku og við lifum mestmegnis á
ís og förum alltaf seint að sofa. Máski
orðum aukið. Guðfinna fór í dag suður
þar sem hún flýgur snemma í fyrramálið
til Svíþjóðar þar sem hún
verður í viku. Ég ætla að skjótast
hringinn í kringum landið í næstu viku,
vonandi fæ ég gott veður. Galantinn fór
með bílflutningabíl suður í viðgerð
og ég er á Primeru frá Heklu hf. á
meðan. Það er allt að gerast um helgina, Sálin
og Sssól með sameignlegt ball í Árnesi,
Írafár í Sjallanum, besta veður sumarsins
að sögn veðurstofunnar, en ég og Pétur
látum okkur duga að vafra um bæinn og velta
fyrir okkur mannfólkinu, ísinn er mundaður
óspart. Bæti við nokkrum kipmyndum
á eftir.
4. júlí 2003
Snilldarræma
þessi mynd. Ég og Guðfinna fórum á
Charlie's Angels - Full Throttle miðnæturforsýningu
í gær og Teddi kom með. Teddi hefur það
skemmtilega ættarnafn Krebinsky og mun afi hans vera frá
Kákakus, eða afi hans er jógúrt. Galantinn
er ennþá hjá Heldi með sjálfskiptinguna
í viðgerð og er ég farinn í
sumarfrí næsta miðvikudag.
30. júní 2003
Hellú..
Við Guffa fórum suður um helgina og gistum hjá
foreldrum hennar. Það var líf og fjör
þar enda er þessi fjölskylda með eindæmum
lífsglöð og skemmtileg. Afskaplega gaman þar.
Við vorum ekki sérlega actív enda leið
okkur svo vel í Laugardalnum. Ég er að fara
í sumarfrí bráðlega og þá
verður tekin önnur suðurskreppa eða bara einhverja
helgina.
20. júní 2003
Skiptingin
í galantinum fór til Indlands en það
er ekki mitt mál heldur Heklu/Höldurs en Galantinn
verður í viðgerð í some tíma.
Á meðan lánar Hekla/Höldur mér
Nissan Primera vagn sem eyðir dáltið minna en
Galantinn.
16. júní
Það
er búið að vera gaman að vera til þessa
helgina enda svo algerlega áfengis og tóbakslaus
að mar er að springa. Live2Cruize pakkið er búið
að hertaka Akureyri sem er mjög gott og gaman að
sjá þessa bíla gefa bænum svoltinn
hollywood lit. Fast&furious gellur á hverju horni
þannig að meðalgreindarvísitalan snarlækkar
svo verulega að menn hætta alfarið að míga
og skíta í klósett og drulla míga
þá frekar undir sig. Þá er vinsælt
að brenna af sér fötin til að halda á
sér hita. Þetta er gaman, þetta er fólkið
sem erfir ísland. Jibbí.
13. júní 2003
KIP
er kominn á MMC Galant Glsi 2500 V6 24v '97. Kip is off
the market. Fiðrildið hvílir vængina sína
hjá kip og vona ég að sá munaður
endist sem lengst. Við skruppum til Ólafsfjarðar
í gær og mér tókst að villast.
Rak Galantinn niður 4 sinnum á sömu hraðahindruninni,
fast. (",) Hér er mynd af Galantinum: Galant
6. júní 2003
Þvílík og önnur
eins steypa getur þessi heimur verið stundum :)
22. maí 2003
Mér finnst norska lagið frábært.
Bæði lagið og sérstaklega textinn. Lagið
og textinn er hér á þessari síðu
neðarlega til vinstri............
1. maí 2003.
Allsber að prófa heiminn, heimurinn verður föt,
stundum stinga föt, t.d. eins og ullarpeysur? kannist viðetta?
:)
Hina stundina er maður í nýjum bómullarbol.
Frelsi til að kynnast fólki er vandmeðfarin bómull.
24. apríl 2003
Nú er eitthvað minna uppbyggilegt að gerasti,
á maður ekki að skrifa líka þegar
ekkert gerist? Ég hef hjólað lítið
undanfarið, ekkert gert að viti.. Þessi leti hófst
með slyddunni og endar líklega ekki fyrr en sólin
fer að hrýna.
24. apríl 2003
Á morgun fer ég suður á vegum Skríns
og verð þar yfir helgina. Ég hvet alla sem
ekki hafa séð myndina "Great Expectations"
að gera það og taka sérstaklega eftir tónlistinni.
Öll umgjörðin á myndinni í heild
er býsna flott og þetta er svosum ágæt
saga, endar máski einum of vel. En það er sérstaklega
eitt lag sem ég elska sem er í myndinni, lagið
Life in Mono.
"Life In Mono" is very soft and easy to listen, and
the music gives the song a layer of mystery. Siobhan's voice
just like a kind of ghost, fantasy, or ... ancient Goddess.
When you close your eyes while listening to it, you can imagine
you are placed inside a pyramid or a mystery place or even in
an alien space craft. It must be the song for all the universe
to listen to, because it brings the feel of lonely in a big
place. Hlusta hér
22. apríl 2003
Mmmdaa nú er rigning, þá ég fara
uppí Kjarnaskóg á eftir!! Allt örugglega
ferskt og mikill ilmur, ilmur af nýju lífi.
17. apríl 2003
Nú er voða gaman. Ég , Halli, Hanna, Geiri
og Lára vorum í sundi lengi lengi. Við Trausti
ætlum á Amor að hlusta á Stebba Jak
og Ottá Pál spila í kvöld. Það
verður gaman að hlusta á Ottó munda gítarinn
þar sem við Ottó höfum spilað mikið
saman í gegnum tíðina, nokkur minnistæð
böll o.fl.
Í gærkveldi fórum við Halli, Hanna,
Geiri, Lára, ég og Trausti upp í Kjarnaskóg
og grilluðum og sungum óendanlega oft sama lagið...
15. apríl 2003
Í dag kom vorið. Þegar ég var að
hjóla upp í Kjarnaskógi eftir vinnu þá
fann ég í fyrsta sinn á þessu ári
lyktina af öspunum.. þá er vorið komið.
Lerkið er orðið fagurgrænt sumstaðar og
ég heyrði í hunangsflugudrottningum..
Svo skaust ég með stöngina niðrá
Krossanesbryggju áðan og Trausti kom með og tók
kvöldmyndir af firðinum.
13. apríl 2003
Var að lenda, skrapp suður um helgina. Fór út
með vergo á föstkv og gisti hjá honum.
Sund í Hafnarfj. sundlaug á laumorgunn sem var
snilld, svo brillaði ég og rústaði Hemma
bróðurí keilu á laudaginn... Var slakur
á laukvöld. Heimsótti Lasarus vin minn og
gisti í íbúðinni sem Ingó bróðir
var með yfir helgina. Ferming í dag og svo heim...
Mig langaði ekki heim, fínt veður í borginni
og margt að gera. Akureyri er yndæll fallegur staður
en það einhvernveginn var ekkert gaman að koma
heim... hmm. Afhverju eru ekki páskafrí á
vinnustöðum eins og í skólum? Well ætli
ég taki ekki íbúð í Rvík
í sumar eina viku til að skoða staði og stundir...
7. apríl 2003
Í gær ráfuðum við Trausti um listigarðinn,
minjasafnsgarðinn og kirkjugarðinn ásamt því
að vafra um fáfarnar götur innbæjarins,
þ.e. bratta stíga og götur. Við hittum
kött.
6. apríl 2003 kl. 01:53
Skötuhjú Þórey & Maggi og ég
héngum á Amor í some stund í kvöld
og hálfleiddist. Ein hjólreiðaferð gefur
manni meiri skemmtun en að umgangast fullt fólk.
Undarleg árátta að þvælast svona,
því fer maður ekki frekar snemma að sofa
og vaknar snemma og fer út á undan öllum
öðrum og nýtur morgunfegurðarinnar (Morning
glory)... Vissulega er nóttin falleg og spennandi, en
það er eins og það sé meiri höfgi
yfir morgninum, nýtt upphaf.
5. apríl 2003
Saltfiskurinn rann ljúflega niður með víninu
hjá Halla og Hönnu. Svo spiluðu við Halli
frameftir kvöldi (gítar og bassi). Svo komu Geiri
og Lára og allir fóru loks á Amor en þar
hitti ég Hall sem er snillingur. Svo var haldið í
Laxagötu þar sem Kalli Ingólfs og Halli fóru
að láta ófriðlega þar til Kalli
nokkurnvegin dó, þá fóru Trausti
og Halli að láta ófriðlega en ég
held að mesti ófriðurinn hafi verið af mér
af því ég hló hló samfleitt
frá 4:30 am til 06:00 am. Í dag fór ég
á síðasta leikinn á minningarmóti
um Marjo Kristinsson þar sem SA stelpurnar kláruðu
blandað lið úr SR og Birninum.
4. apríl 2003
Í kvöld er lífið líklega saltfiskur,
hvítvín og íshokkí...
-ps. Heyrasmeyraleira "Last
Goodbye" með Atomic Kitten
1. apríl 2003
Fór flatur á hjólinu í dag í
hálkunni... ekki gabb
31. mars 2003
Ég held ekki vatni yfir Atomic Kitten þessar vikurnar,
eins og sumir vita þá er ég óendanlega
mikil alæta á tónlist og takturinn og melódíurnar
í lögunum hjá Atomic Kitten hefja mig á
flug.. Ég setti link í lagið neðst til
vinstri ... Stelpurnar í Atomic Kitten syngja ekkert
áberandi vel og ekki eru þær neitt sérstaklega
fallegar, það er ekki málið, það
er bítið og útsetningarnar sem eru svo yndislega
commercial stílaðar á lífsglaðar
tilfinningaverur... 
17. mars
Ég verslaði mér hjól í dag,
go kip go....
12. mars 2003
Ég sá fiðrildi um daginn. Það er
bara mars en samt sá ég fiðrildi, ég
veit ekki hvort náttúrufræðingar trúa
mér en ég sá samt fiðrildi. Merkilegasta
við það er að ég hef aldrei séð
fallegra fiðrildi á æfi minni. Máski
er það ekki til, það er náttúrulega
bara mars og kannski er fiðrildið ímyndun mín.
Ég vona að það flögri í frelsi
sínu og sumarið fari vel í það.
Vona líka að ég sjái það
aftur.. og aftur. -
Það er svo skrítið hvað við erum
flest annaðhvort á lirfuskeiðinu en þó
mörg komin lengra, komin í púpur, fæstir
eru fiðrildi samt. Þegar við erum lirfur vitum
við ekki að það er til fleira en gróðurinn
sem við lifum á, og okkur er sama. Svo kemur að
því að við breytumst í púpur.
Þá erum við furðu lostin að eitthvað
skuli vera meira en lirfulífið. Við fáum
mikinn tíma til að hugsa innilokuð í skurninni,
oft líður okkur illa og söknum þess að
vera lifandi lirfur í hversdagslegu lirfulífi
þar sem allir dagar bjóða upp á að
borða, sofa og hreifa sig. Samt kemur að því
hjá púpum að þær uppgvötva
enn stærri heim, þær púpur sem deyja
ekki úr kulda breytast í fiðrildi. Fiðrildi
sem eru lítil, létt og svífa um í
heimnesku frelsi og gleði. Litrík fiðrildi hlæjandi
og sumhver þó þögul en bara glöð
inn í sér, vegna þess að þau eru
fiðrildi.
8. mars 2003
Í nótt var gaman saman. Geiri, Lára, Halli
og Trausti komu til mín og við drukkum og sungum
sem sannir íslendingar. Héðan var svo haldið
í Laxagötu þar sem tók við meiri
söngur og gaman. Næsti viðkomustaður var
Café Glamor og þar biðum við eftir að
Sjallinn opnaði. Þegar við komumst í sjallann
tók við stanslaust gaman og var dansað í
djöfulmóð. Logi Bergmann Eiðsson og Gísli
Marteinn voru pöddufullir og dönsuðu Óla
skans. Svo endaði ég skemmtilegt kvöld/nótt
á því að brjóta debetkortið
þegar ég var að fara fá mér að
borða...
7.mars 2003
Mjæææja kip fór í klippingu
og strípur í dag og nú er klukkið 20:33
og Hómer, lára og Halli eru á leiðinni
til þess að fagna þess að vera til. Megi
guð og guð og góðir menn vernda mig í
nótt.
5.mars 2003
Mikil snilld er í væntum, það á
að pota niður hringtorgi á Laugum, ntt. á
þjóðveg nr. 1. Það er snilld, tær
snilld og mun vonandi skila til ætluðu en það
mun vonandi vera að draga úr umferðarhraða
þerira sem aka rakleiðis í gegnum Lauga á
120 km. á klst. þar sem hámarkshraði
er 50 km. á klst.. Þetta mun etv. leiða til
þess að fólk nýti sér frekar
þjónustu á Laugum, td. er það
ekur í gegnum hringtorgið og Laugasel er þá
á ákveðnum tímapunkti akkurat 12 o'clock!
ÖL 12 o'clock! mmmmjá! - Nánar
hér...
2. mars 2003
Við Pétur dvöldum í sveitinni yfir helgina
í miklu yfirlæti hjá Alla og Gullu. Á
laugardagin bauð Gulla okkur á Skilaboðaskjóðina
á Breiðumýri og var það snilld,
um kvöldið snæddum við Pizzu hjá Ingólfu
og Kristjönu, pétur fór í pottinn
og við bræður fylgdum á eftir.
26. feb
2003
Ég á afmæli í dag og er veikur, frábært...
Þetta er skæð flensa hlýtur að vera
en það er furðulegt að enginn í kringum
mig virðist fá þetta. Ég er með
smá lungnabólgu með þessu og verð
helst að passa mig soltið haggi?
25. feb 2003
Jæja... Ég er fárveikur... Með hita,
kvef, hálsbólgu og lungnakvef.. rooosalega góður
kokkteill.
Á laugardaginn fór ég á Fiðlarann
með Halla, Hönnu, Trausta, Geira og Láru og
var það mjög skemmtilegt. Ég á
afmæli á morgun og verð svo mikið sem 24
ára. Rosalegt.....
19. feb 2003
Þið eruð öll snarvitlaus
15. feb 2003
Í dag var haldið upp á afmæli Péturs
Ívars. Hann verður fjögurra ára á
þriðjudag...
Annars er ekkert að frétta svosem, heimurinn oft
á tíðum grár og gugginn og hreint viðbjóðslegur
en stundum aldeilis fallegur. Mig langar til að minna fólk
á súrvef tveggja vina minna, www.apotek.tk
6. des 2002
Búinn, tómur. Þessi vika sko...stresssprengja
aldrarinnar. Fór með Ingvar E. vinnufélaga
til Egilsstaða í gær að tengja fyrirtæki
og komum 04:30 í nótt. Mig svimaði og og var
óglatt úr stressi í dag. Verð með
Pétur um helgina og við gerum eitthvað fun, förum
og hendum steinum í álftirnar og endurnar hjá
sundlauginni.. Eða við reynum að gefa þeim
brauð... Allavega refsum við þeim sem vilja ekki
brauð.... (reydnar er ég síðasti maður
til að hrekkja dýr, nema kóngulær)
2. des 2002
Í dag gerðist tvennt stórskemmtilegt. Ég
byrjaði daginn með því að henda tannkremstúbbunni
í klósettið, svo þegar ég kom
við heima í dag missti ég 60þús
kr. gemsann í klósettið líka. Líkurnar
á að þetta gerist sama dag eru mjög litlar.
Tek það fram að það var hreint vatn
í skálinni í bæði skiptin, tannkreminu
var hent en símnn er á ofni. Ég var hvort
sem er orðinn leiður á símanum og fékk
annan í vinnunni þannig að ef einhverjum langar
í Nokia klósettkafara þá fæst
hann fyrir lítið! LOL...
Ég keypti sleðann handa Pétri í dag.
|