Kip.is Kip.is er bara flipp, ég hef frekar
litlu að koma á framfæri, en það
er gaman að vera týpískur, vera með síðu
og kynna sig... ( klént er gott?)
Hvað
er ég Manneska. Frekar hugsandi ef eitthvað
er, vinn sem kerfisfræðingur en í frístundum
stunda ég útivist, hjóla, spila á
hljómborð, hanna grafík, knúsa og kyssi Guðfinnu og hugsa og hugsa um
lífið og tilveruna. Út á við var ég lengi þekktur sem Diddi í Ásprent og síðar Diddi í Skríni. Vinir mínir kalla mig ýmist KIP eða Didda. Konan mín Guðfinna kallar mig Kipaling :)
Fegurð Fegurð lífsins er rosaleg þegar
maður tekur eftir henni. Hún er allstaðar, maður
ef bara yfirleitt svo leiðinlega upptekinn af sjálfum
sér að mar tekur ekki eftir henni.
Auk hættunnar á lífshættulegum heilaskaða í keppni í ólympískum hnefaleikum, þá er ekki síðri hættan af endurteknum minni áverkum sem enda í heilasköddun, segir í ályktun félags slysa- og bráðalækna.
Fróðleikur:
Er mjólk, eins og hún er unnin í dag, í raun jafnholl og af er látið? Þegar litið er til innihalds mjólkur af næringarefnum er ekki hægt að segja annað en að mjólk sé bráðholl. Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ er á.
meira...
Fagur er fiskurinn...
Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum, bröndóttur á halanum, með rauða kúlu á maganum. Fetta bretta, vanda branda, gættu þinna handa, brátt skal högg á litla lófann detta!
Það er gott að vera til í heimi þar sem Guðfinna er.
30. desember 2004 Hafið þið skoðað þetta? Jæja gott. Já ég kom úr sveitinni 2. í jólum. Tók 350 myndir í sveitinni en ég nenni ómögulega að pota þeim hér inn. Annað kvöld, gamalárskvöld hittist fjölskyldan mín hjá foreldrum mínum en þar verðum við Pétur Ívar í alsnægtum og faðmi fjölskyldunnar. Þakka ykkur fyrir jólakortin öll, ég sendi ekkert.
23. desember 2004 Jæja þá er ég kominn í sumarfrí. www.skrin.is/jol þetta er það síðasta sem ég gerði í vinnunni áður en ég fór heim. Þetta er reyndar snilldar mynd sem ég tók í gilinu í fyrrakvöld. Tók margar góðar af kirkjunni þá. Jæja Guðfinna flýgur suður á eftir ein þar sem ég ákvað að vera með fólkinu mínu þessu jólin. Ég fer austur í Reykjadal og verð þar. Ég segji bara við ykkur öll, Gleðileg jól og þakka ykkur hafa veitt mér þá ánægju eiga ykkur sem vini.
13. desember 2004 Jæja börnin góð. Fór á Hvanndalsbræður mína á fimmtudagskvöldið og tók á 2. hundrað mynda þar fyrir þá. Mætir menn og konur frá Rás2 fóru mikinn með okkur og allt var þetta mjög gaman. Á laugardagskvöldið fórum við Guðfinna í þrítugsafmæli Sumarliða Hvanndal þar sem ég tók "Vel er mætt" með Jónasi Þór óperusöngvara.
7. desember 2004 Ég fór á Eyvör(i). Ég hlustaði á Eyvör. Ég tók myndir af Eyvöri. Hvernig fallbeygjir maður Eyvör? Svo fór ég tveimur dögum seinna á jólahlaðborð á Café Karolínu með Pedromyndum. Mjög mikið gaman. Annars veit ég ekki hvern djöfulinn ég á að skrifa hér en Símon var að kvarta að ég skrifaði aldrei neitt. Hef ekkert að segja, þreyttur og þunglyndur.
29. nóvember 2004 Alveg ljómandi magnað. Við Skrínarar fórum á jólahlaðborð í Mývatnssveit á laugardagskvöldið og gistum á Sel-hótel Mývatni. Við erum frekar músíkalskir eins og sést á myndunum. Já ég tók vel mikið af myndum á nýju vélina og notaði Sigma 15-30 linsuna. Annars hef ég ekki meira að segja, myndirnar tala sínu máli.
25. nóvember 2004 Þrennt gerðist í dag. Fyrst fór ég með Pétur Ívar son minn á slysó eftir hann datt á leikskólanum og fékk heilahristing. Hann var óskup bágur og ekki skemmtilegt fyrir hann. Síðan fékk ég mér nýja Canon 20D og hlakka til að festa ykkur sem lesið á filmu :) Nei ekki filmu heldur CF kort :) Já og það þriðja sem gerðist var frumraun Guðfinnu í vefsíðugerð.
15. nóvember 2004 Viðburðarík helgi yes. Við fórum á Stólarnir og Ausu í LA á fimmtudagskv. Þetta eru tvö sjálfstæð leikrit. Fyrir hlé voru stólarnir sýndir og var það eitthvað sem ég var ekki að fíla. Eftir hlé var hinsvegar á sviði hún Ilmur og lék þar hana Ausu. Þvílík upplifun, hún Ilmur er frábær leikkona og handritið er það einnig. Stólarnir fá enga stjörnu af fimm mögulegum eða Ausan fær fjórar. Jæja svo kom föstudagskvöld og við héldum partý sem fór vel. Laugardaginn fórum við í Afmæli til Alla bróður og gistum þar (í Reykjadal). Í gær komum við heim og ég fór beint á útgáfutónleika í með Margréti Eir í LA. Tvístrandi splúndrandi snilld. Þar var á sviði landsþekktir tónlistarmenn sem gáfu Margréti ölduna sem hún sigldi kraftmikil á. Ég átti í vandræðuim með að láta tárin ekki renna af hreinni gleðiupplifun við að hlusta á "Einn góðan dag". Sjálfsagt hefði ég bara átt að fara hágráta þarna því þetta var svo fallegt en ég hélt aftur af mér. 5 * af 5 mögulegum. Ég keypti nýja diskinn og er að hlusta á hann núna. Mér finnst Magrét hafa sungið af meiri innlifun á tónleikunum en á disknum. Þannig er það oft. Jæja strax að tónleikum loknum þutum við Guðfinna í Bíó og sáum "After the Sunset". Fín videospóla, bráðfyndin en ekkert til að fara í bíó yfir.
10. nóvember 2004 Hvað finnst finnst ykkur um þetta, ég er inn í eldhúsi að baka á fullu meðan konan liggur flöt og horfir á lessuþátt í sjónvarpinu. Ég er að baka graskerpæ svokallað, held það sé nú frændi kryddkökunnar frægu. En að öðru, mig sárvantar að vita um ferð frá USA, smá smúgglí smúggl er að fá mér Canon D20 + nokkrar linsur og accessories.
5. nóvember 2004 Guðfinna ætlar suður um helgina að dettíða með Gígju og ég verð með Pétur á Akureyri. Ég er búinn að biðja jólasveininn um Canon D20 í skóinn. Hvernig er það, er almennt kominn jólahugur í ykkur? Vitiðii mig langar svo í Canon D20, Korg Triton Studio, mixer, hljóðnema og nýtt hljóðkort. Hér er svo mynd af mér, ný mynd, ný ímynd.
3. nóvember 2004 Það var góð stund síðasta föstudagskvöld heima sjá Símoni. Þar voru mætir menn og ein mæt kona. Mikið hlegið. Guðfinna er að hanna vefsíðu handa sér og byggir útlitið á eigin teikningum. Flott frumraun á netinu þar. Annars er ekkert að frétta og allt steindautt. Svipur dagsins er "krúttlegasti örvæntingarsvipurinn" (græni kallinn).
26. október 2004 jáááá hvað haldiði! AUÐVITAÐ er Sálarball í Sjallanum fyrir jól, 18. desember 2004. Þetta stafesti Gummi á Sálinni í bréfi til mín áðan. Óendanleg snilld! Tvístrandi snilld! Komdu með mér til að kanna heiminn, kreistum appelsínur - finnum keiminn! Þá er best að fara smala saman genginu og kynda undir fólki svo sem flestir mæti.
26. október 2004 Ótrúlegt ótrúlegt spenntur spenntur. Það er séns að sálin verði í Sjallanum fyrir jól. Það er SÉNS. Gummi segir á síðunni sinni að þeir séu að starta Sálarvélinin aftur til að fara í smá túr fyrir jól. Í kjölfarið á þessari endurvakningu Gumma & co í Sálinni bjó Gummi til nýtt Sálarlag "Tíminn og við". Ég gróf upp final mix af því hér.
19. október 2004 Við Skrínarar byrjuðum í öli og minigolf í Skríni kl. 1600 laugardag var sem endaði í partýi í Eyrarlandinu sem endaði aftur á móti með ælutilþrifum Skuta. Gott Partý samt! í dag voru teknar 4 rötgen af mér og tekið mót af tönnunum. Já Colgate-kip fæðist 2005. Fékk mér nýtt skjákort í dag. ps. Ég er máski að fara starta nýju bandi á vordögunum, það verður gaman.
10. október 2004 OJBARA ógeðlegu rússar, að drulla svona út sjóinn okkar, og það aðeins 20-30 sjómílur út af Vopnafirði. Meira drullupakkið að geta ekki ullað í sinn eigin garð.
6. október 2004 Svona til afþreygingar þá er hér gott grín. Vinur minn tók mynd útum bílrúðu á ferð heima í Reykjadal árið 2002 og sama ár sendi ég myndina í gríni á UFO samtök úti og olli þetta miklu fjaðrafoki þar. Það fyndna er að "UFOinn" er skítaklessa á rúðnni. Ljótt að plata úllana svona uss. Annars þá auglýsi ég eftir tölvuheddsetti ef einhver á til sölu.
6. október 2004 VIð Guðfinna fórum í slökunarnudd í gær hjá Hári & Heilsu. Mér fannst það frekar óþægilegt að láta nuddkonuna strjúka á mér lærin alveg uppí nára þannig að aðeins hársbreidd munaði að hún væri að fikta í limnum sjálfum. Einungis Guðfinna mín má koma svona við mig. Þá vík ég að öðru, ég er steinhættur að reykja og stend mig vel þar.
4. október 2004 Ég og Geiri máluðum Reykjavíkurhrepp rauðan á föst.kvöld. Vorum bendlaðir við mafíuna og einnig að við værum hommar. Guðfinna varð 21árs í gær og ég er ekki búinn að reykja síðan í fyrradag. Þessa dagana er lítið að gerast. Er stundum að músíkast með Hrönn Sigurðar og það er gaman. Bjó til nýja hvanndal.com. Svo er kominn út Messenger7beta..
10. september 2004 Setti upp 2 þráðlaus net í gær. Át kjúlla hjá Þóreyju og Magga.. Hitti strákana í Sent á æfingu og brillaði á hljómboðrið hans Stebba. Fór til Hrannar og við æfðum saman lagið mitt. Btw.- Hrönn er búin að semja ógeðslega flottann texta við það. Ég er með Pétur þessa helgi og líklega förum við í sveitina eftir vinnu þar sem Hermann ætlar að fixa Galant...
5. september 2004 Guðfinna er farin suður og kemur eftir viku, 12. sept. Við fórum í golf í gær ásamt Skrínurum og hún rústaði mér þar, sérstaklega í púttunum. Svo fórum við á Bautann með Skrínslurum og þótti það gott. Ég átti góðar stundir með Halla Símoni og Trausta þó mér væri misboðið tvisvar. Fékk á mig viðrinisstimpil fyrir viðveru mína í þeim félagsskap.
31. ágúst 2004 Mikil snilld hvað skjótt skipast þrumuveður í ólofti. Guðfinnu var boðin vinna í Pedromyndum og byrjaði hún þar í morgun. Í kjölfarið flytur hún ekki suður. Þá verðum við litlar sætar kanínur í Eyrarlandsveginum áfram. Guðfinna nýtur líka þeirrar mildi að vinna með Þórhalli sem er borinn og barnfæddur snillingur af guðs náð.
30. ágúst 2004 Uss uss uss ég er með hálsbólgu og kvefstíflaður og hitaslæðing við og við. Hvernig væri að hætta að reykja. Oprah eru ágætir þættir fyrir utan þegar fólkið gapir af heimskulegum undrunarsvip. Gestkvæmt var í gær, Fjóla dvaldi og Símon & Trausti litu inn í Kaffi. Hef ekki fleira að segja og þetta er átgætt. Er það ekki Geiri?
24. ágúst 2004 Já það er gott að kyssa Guðfinnu, verst að fleiri fái ekki að njóta þeirrar himnasælu. Ég er að undirbúa kynningu á Skríni sem ég og Summi Hvanndal verðurm með uppí háskóla um helgina. Hann Sumarliði Hvanndal er óskaplega góður drengur, hávaxinn og fallegur. Verst að ég skuli ekki vera hommi. Guðfinna nýtur þó góðs af því.
23. ágúst 2004 það kom mér á óvart áðan þegar ég var í ham á hljómborðinu að ég fattaði að ég var að spila part úr tógötu og fúgu í dmoll eftir Bach. Ótrúlega er hresandi og gott að útrásast á hljóðfærinu annarslagið. Þú er myrkrið að skella á og dagurinn orðinn stuttur finnst mér. Guðfinna er að flytja suður eftir hálfan mánuð að skólast og vinnast. Þá verður þetta fjarbúð.
20. ágúst 2004 Alveg er þetta sorglegt ástand að Sálin sjáist ekki lengur leiða landann í taumlausri gleði. Ég og fleiri erum sammála um það að það er eins og einhver náinn vinur hafi dáið, það vantar svo mikið. Ég ók á 5 gæsir um daginn, þær dóu allar samstundis við höggið og sumar afhausuðust. Bíllinn beyglaður og blóðugur eftir þessar aðfarir. Hér er lag
16. ágúst 2004 Haha ég fæ heimskuverðlaun. Í algleymi mínu áðan stöðvaði ég uppvaskið til að leita að símanum sem hringdi af hástöfum. Ég hljlóp inn í stofu, stoppaði og reyndi að staðsetja hringinguna. Kom í ljós að hljóðið var í 4km fjarlægð frá skemmtiferðaskipi sem baulaði blessbless. En svona er bara að vera ég :)
13. ágúst 2004 Jæja nú er ég á Jan Majen að taka upp kartöflur. Það er ekki hlýtt hérna verð ég að segja og þetta allt kom mér mjög á óvart. Golfstraumurinn nær ekki hingað og hér er snjór upp eftri hlíðum en kartöflugarðarnir eru auðir. Höldum heim á sunnudaginn á Skútunni. Annars skylst mér að það sé hlýtt á Akureyri. Hér er lag, mjög mjög gott lag! - Hlusta
6. ágúst 2004 Við fórum suður um Versló, án gríns.. og það var bara fínt! Nóg að gera þar. Ég var að koma úr 700km vinnuferð út á land með nýjann tölvubúnað sem ég skipti út. Ég er frekar þreyttur en ætla samt að kíkka með Guðfinnu smá niðrí bæ.. eki langt að fara ;) Ég minni alla á sumarmyndasafnið mitt á kip.is/kipmyndir og svo er líka stundum mbloggað eftir nennu...
16. júlí 2004 Ok við erum komin heim. Mánudaginn 5. júlí ókum við til Egilsstaða og þaðan til Borgarfjarðar eystri. Svo til baka og tjölduðum í Atlavík. Þriðjudaginn fórum við á Seyisfjörð og stoppuðum þar. Steikjandi þar og gott. Svo uppúr honum og Reyðarfjörður svo Stöðvarfjörður og Tjaldað þar. Átum kjúllabringur í krisuberjasósu á kaffi Margrét fyrir ofan Breiðdalsvík. Berufjörðurinn var æði og tíndi ég steina í fjörunni þar. Nýja sundlaugin á Djúpavogi er glæs. í Stafafelli ókum við á 4wd fyrsta á lága upp og niður brattar brekkur. Svo gist í "Hittu" á Höfn. Síðan farið í Skaptafell og Skógarfoss. Þá var keyrt á Bakka og flogið með Eyjaflugi til Vestmannaeyja. Þar gistum við eina nótt, fórum í bátsferð og löbbuðum um. Flugum svo til lands og ókum til Reykjavíkur. Þar gistum við nokkrar nætur og fórum einn daginn á Snæfellsnes og tókum þar góðan hring. Myndirnar úr þessari ferð eru á leiðinni inn næstu daga.
2.júlí 2004 Jæja þá förum við í sveitina í fyrramálið, Guðfinna, Pétur og ég. Á mánudagsmorgunn leggjum við Guðfinna af stað hringinn í kringum landið og er mikil tilhlökkun. Það verður óspart myndað og líka mbloggað. Ég hlakka til að fara í Njarðvíkurgil að leita að flottum steinum. ps. á einhver slípitromlu fyrir steina til sölu? :) Bless bless.
24. júní 2004 Já ég seldi tölvuna sama dag og ég auglýsti hana og keypti líka nýja sama dag. Það er þruma dauðans þessi nýja. Ég fer í sumarfrí um næstu helgi og við Guðfinna ætlum að fara hringinn með áherslu á austfirði. Ég fór hringinn einn síðasta sumar og það var æði. Núna er Trausti vinur minn í Interrail og vona ég að það gangi vel. ps.. - hér Mbloggið mitt...
3. júní 2004 Elskurnar mínar mig langar til að minna ykkur á að eyða jafnóðum pósti og hann berst, annars lendið í því að svokallaður .pst fæll springur og þá glatast allur pósturinn og fleira með. En svona í leiðinni, vantar einhverjum tölvu? Mín er til sölu þar sem ég er að fjármagna myndavélarkaup á Canon D300 Rebel. Hér er lýsing á tölvunni.
2. júní 2004 Já svona duglegur líka að skrifa strákur! Um síðastu helgi komu tengdó og allir voru saman og gaman. í gær áttum við Guðfinna byrjasamanafmæli en þá var ár síðan við kysstums í sjallanum og síðan höfum við búið saman og verið á föstu með fiðrildi í maganum. Núna er farið að styttast í sumarfríið mitt !!! Ps. Doddi er á Mallorka svað-vaðandi í kellingum.
10. maí 2004 Fín helgi, Eftir námskeið og kvöldverð á Öngulsstöðum var hittingur heima hjá mér þar sem starfsmenn Skríns, Þekkingar, Stefnu og Anza spiluðu drykkjuspil. Þetta var drykkjuspilið "Diddi þú ert svo sætur" og er þannig að sá sem þarf að drekka verður að byrja hvern sopa á þessari setningu. Svo fóru allir á Kaffi Ak og stigu trylltan dans, sérstaklega við Guðfinna. Partýð var með þeim betri, Sverrir Stormsker á fullu og Teddi mímímímí. Ég er tognaði í hné og baki, og er með strengi í rassinum, allt eftir tilhugalífsdansinn við Guðfinnu. Það er svo gaman að þessu krakkar, við Guðfinna látum alltaf eins og við höfum byrjað saman í gær, til viðvörunar fyrir klígjugjarna þá verður þetta svona alla ævi.
2. maí 2004 Ég, Maggi og Guðfinna fórum á Kill BIll 2 í gær, fín ræma. Þórey og Maggi í kaffi og kökur í dag. Ásta kom með Pétur í dag svo að Pétur gæti sýnt okkur Guðfinnu nýja hlaupahjólið sitt. Æji Pétur stækkar allt of hratt. Hann var sætur með hné og olbogahlífar og í rauðblikkandi skóm. Nú má sumarið koma svo við Pétur getum farið í Kjarnaskóg að leika okkur.
26. apríl 2004 Dúddúvarívarí ég finn matarlykt. Gísli hefur sennilega keypt ógeðslegt núðlusúpuhelvíti og dirfist að menga Skrínið með þessum daun. Mér finnst að eigi að framleiða lyktarlausa skyndirétti. Af KIP og GBS er það helst að frétta að GBS ætlar að vera í kirkjugarðinum í sumar og ég verð sennilega áfram hjá Skríni. Við Pétur fórum í sveitina núna um helgina.
8. apríl 2004 mmmmmmmm nú er í ofninum Kjúlli A'la KIP með söxuðum appelsínu- og sítrónubarkarbitum í grillpoka, rjómi og hvítvínsslettur langt inn á stofugólf úr eldhúsinu ;) Ég er að elda uppáhaldið mitt, kjúklingabringur með appelsínuberki, grillað í grillpoka o fl Annar er ég á bakvakt og tek það rólega um helgina með Pétri og Guðfinnu..
3. apríl 2004 Nú þegar þetta er skrifað sést varla út úr augum á Akrueyri vegna sinubruna fram í firði.. Ég myndi ekki vilja eiga þvott úti á snúru núna. í Gilinu á sér stað Ak-X keppni í stökktilþrifum á snjóbrettum og litum við á það áðan en entumst ekki lengi. Best að hætta pikkinu í bili og tala við fólk. Máski opnast ein Egils dós í kjölfarið.
3. apríl 2004 Gósentíð, Gígja systir Guðfinnu er hjá okkur yfir helgina. Doddi kom í gær og litum við á lífið í gær. Fórum í sund í dag sem var snilld. Svo fórum við í Nettó þar sem guðfinna varð fyrir kynferðislegri áreitni. Reyndist meintur glæpamaðurinn vera vinur minn og fyrirgefst honum það vegna vináttubanda þó Guðfinnu hafi alls ekki verið sama að hennar sögn.
30. mars 2004 Nú meiga mánaðarmótin alveg koma, það væri ekkert verra að fá eitthvað inn á debetkortið sem er alveg flatt núna... Hvernig er að gott fólk, vitiði um einhvern sem vantar eitthvað sem ég sel? Vefsíðugerð, tölvuviðgerðir, hugbúnað, mig nakinn, eitthvað? Nei annars Guðfinna vill ekki að ég selji líkama minn þannig að það verður að vera tölvutengt.
26. mars 2004 Eldur eldur. Brunaliðið, löggan og sjúkrabílar vældu og spældu niðru hrafnagilsstrætið og í skólastíginn til að slökkva eld í Skólastígnum seinnipartinn í dag. Reykkafarar óðu eld og brennistein til að leita að fólki. Þetta var íbúðin sem Guðfinna bjó í frá fæðingu og til unglingsaldurs áður en hún og fjölskylda hennar fluttu suður.
19. mars 2004 Flöskudagur. Guðfinna fer í flug á eftir suður í ammli hjá Lísu, sorry ég nennti ekki með. Þannig að núna ligg ég sirka _________svona flatur. Mjammm vantar einhverjum hljlómborð, ég er að selja 2 afþví mig langar í Triton Classic.... jumjum. Jæja best að skutttla Gúsfinnu á völlinn í Fucker 50 :) chaooooooooooooo...
7. mars 2004
Úff úff. Við héldum partý í gær og ég fór yfir strikið í drykkjunni, var farinn að labba á tré og veggi í Eyrarlandsveginum... Var við það að drepast þegar ég tók þá skyndiákvörðun að partýið væri búið og hóf að smala út. Svo fór fylkingin niður í bæ og einhvernvegin tókst Guðfinnu og Sísí að halda á mér niðureftir.
1. mars 2004 Strengir og verkir. Vorum hyperdugleg um helgina að flytja dótið og þrífa gömlu íbúðina. Það er svoltil lakklykt á Eyrarlandsveginum þannig að ég vakna yfirleitt sky-high. Nýja rúmið er gott, laus við vatnsgutlsrúmið. Nýja sjónvarpið kom að sunnan í nótt og sófinn kemur á morgun. Við guðfinna erum búin að þekkjast í 1 ár núna og búin að búa saman í 9 mánuði.
26. febrúar 2004 Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ég KIIIIIIIP, ég á afmæli í dag. Já ég er aldarfjórðungsgamall í dag og nei, hann stækkaði ekki í nótt af því hann er of stór ef eitthvað er. Í dag ætla ég að halda upp á þetta með því að gera nákvæmlega ekki neitt. helgina 5. - 6. mars stendur reyndar ýmislegt til. Núna um helgina ætlum við að flytja.
23. febrúar 2004 Í dag er bolludagur og Guðfinna byrjaði 6 í morgun uppí bakaríi að möndla bollur. Pétur varð 5 ára á miðvikudaginn og var afmælisveisla á laugardaginn var. Gaman að því. Ég er byrjaður að vinna í íbúðinni á Eyrarlandsveginum. Pabbi er búinn að vera bestur í heimi og ganga frá hurð þar og redda manni til að pússa&lakka parketið. Eigandi íb... - meira
15. febrúar 2004 Við Guðfinna erum búin að finna íbúð á Akureyri og ætlum þess vegna að flytja aftur til Akureyrar. Sveita lífið er ágætt en heldur vegna þess að vinnutímar skerast á þurfum við helst að vera í göngufæri til vinnu. Við auglýstum eftir íbúð í miðbænum eða neðarlega á brekkunni og fundum eina góða á Eyrarlandsveginum. Smellið á myndina til vinstri.
13. febrúar 2004 Allt í þessum heimi er hverfult. Það er mikilvægt að fólk haldi höndum að sér og gefi sig ekki að fullu á vit gleymskunnar og heimskunnar. Allir verða að sjá um sjálfa sig vegna þess að hver er sinnar gæfu smiður. Þegar öllu er á botninn hvolft varðandi einstaklinginn þá er það val hans og gjörðir í lífinu sem móta hann sem persónuleika. Föstudagspistill
4. febrúar 2004 Nú við fórum á þorrablót heima í sveit um helgina og það var mjög fínt. Áberandi hvað margir voru með myndavélar og fékk ég myndir hjá Dodda o.fl. til að setja á síðuna hér. Já jú ég bjó til einhverskonar myndasíðu á kip.is til að halda utan um þetta myndafargan. Að gefnu tilefni þá ber að nefna að flestu góðu myndirnar á kip.is eru teknar af Trausta :)
27. janúar 2004 Við og við skýtur upp kollinum almennileg hljómsveit sem spilar eitthvað sem mar getur hlustað á í smá tíma áður en ælan gerir vart við sig. The Rasmus er Finnsk hljómsveit og á lagið sem er ofspilað á FM, "First time of my life". Núna er Goose að horfa á Stöð 2 ruglaða og ég er að ná í slatta af lögum með Rasmus og er að hlusta og bullí Þóreyju á MSN...
26. janúar 2004 Á ég að hafa eitthvað að segja? Svoleiðis ekkert nema hvað við Guðfinna erum bara eins og kanínur hérna heima hjá okkur í sveitinni og látum sjónvarpsleysið ekki á okkur fá (bilað loftnet). Ég veit núna afhverju fólk eignaðist svona mörg börn í gamla daga, það hafði ekkert sjónvarp og því ekkert betra að gera en að .... 5 sinnum á dag kemur skapinu í lag!
18. janúar 2004 Óendanlega mikill snjór og ekkert gaman að eiga ekki sleða. Sjálfskiptingin fór í Súbbanum og er ég kominn á annan. Allt gengur sinn vanagang. Pétur Ívar er hjá mér þessa helgi og er hann á brókinni að horfa á sjónvarpið. Ég er líka á brókinni að pikka þetta in. Guðfinna er sofandi inn í rúmi. Hvað á maður að gera í dag, það vantar meiri afþreygingu fyrir barnafólk hér á Akureyri.
12. janúar 2004 Anza partíið hjá Jóa var magnað. Jói er brill. Hann tók innvolsið úr stofugræjukasettutæki og smíðaði tölu inn í það til að geta haft tölvu í græjuskápnum í stofunni. Í partíinu voru menn eins og ég, Teddi, Skuti, Tóti, og Baldvin nulleinn.is o.fl. Við fórum svo öll í karokí á Oddvitann og svo Á Kaffi ak. Á Laugardaginn hengum við Guffa og gerðum ekkert nema fara í bíó á myndina "Honey" sem er fín ræma í Nýja Bíói. Svo vorum við á Amor og Halli, Hanna og Trausti bættust í hópinn. Kíktum á Dátann og það er staður dauðans. Við söknum Galantsins. Ég sakna þess að heyra 6 sílendra malið í bílnum mínum. Sjálfskiptingin, crusiecontrolið og hiti í sætum. mmm. Súbarúflakið er ekki alveg að létta manni lífið. Hei hér er gömul mynd frá stríðasárunum á Laugum.
9. janúar 2004 Hahh já Skrín er flutt í Furuvelli og einnig ég þá. Ég bý samt í Eyjafjarðarsveit með Guðfinnu minni en vinn í Skríni í Furuvöllum. Þrettándinn var góður. Fórum austur í Reykjadalinn á brennuna heima og þeystumst á sleða með Hemma og Alla og Tryggva. Í kvöld er stefnd á partý hjá Jóa Eiríks og svo veit Guð bara hvað við gerum. Svo lét ég verða af því að setja linka á síðuna mína á annarra manna síður.
2. janúar 2004 Nú árið er liðið og hef ég sett allt efni síðunnar frá árinu 2003 á sér síðu sem má finna hér.
Síðasta ár var ár nýs upphafs hjá mér. Ég kynntist unnustu minni Guðfinnu Berg Stefánsdóttur í Febrúar 2003 og þann 1. júní. sama ár flutti hún inn til mín. Mikið hefur skeð síðan og búum við núna í Eyjafjarðarsveit. Ég er á öðru ári mínu hjá Skríni ehf. og er Skrín að flytja starfsemi sína frá Gerárgötu niður í Furuvelli í kjölfar á kaupum Skríns á Anza. Hvað ætli árið 2004 ætli að kenna mér?