Kip.is
Kip.is er bara flipp, ég hef frekar litlu að koma á framfæri, en það er gaman að vera týpískur, vera með síðu og kynna sig... ( klént er gott?)

Ég er Microsoft Certified Professional

Hvað er ég
Manneska. Frekar hugsandi ef eitthvað er, vinn sem kerfisfræðingur en í frístundum stunda ég útivist, hjóla, spila á hljómborð, hanna grafík, tek myndir, knúsa Guðfinnu og hugsa og hugsa um lífið og tilveruna. Út á við var ég lengi þekktur sem Diddi í Ásprent og síðar Diddi í Skríni (Skýrr). Vinir mínir kalla mig ýmist KIP eða Didda. Guðfinna mín kallar mig Kipaling :)

 

Fegurð
Fegurð lífsins er rosaleg þegar maður tekur eftir henni. Hún er allstaðar, maður er bara yfirleitt svo leiðinlega upptekinn af sjálfum sér að þetta fer allt framhjá manni.

- Forsíða
- Gestabók!
- Sagan um KIP
- kip.is 2003
-
kip.is 2004
- Myndir
- Mblog

Kipi að skoða jukk

Fólk:
Trausti
Guðfinna
Einar Logi albesti
Þórdis Úlfars
Hrönn látúnsbarki
Teddi hetja
Zappararnir
Símon fursti
Geiri frændi
Lára vinkona
Doddi frændi

Hanna Dindlingur
Auðunn ljósmyndari
Gunni Bakk
Vinnan mín
Þingeyjarsveit

Helgi eitthvad.com




Skoðið stream frá Viborg:
Kringum Viborg
Upplifun, náttúran
Atvinna og nám
Allskonar listalíf
Verslun og bæjarlíf
Nánasta umhverfi

Fróðleikur:
Er mjólk, eins og hún er unnin í dag, í raun jafnholl og af er látið? Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ er á.
[meira...]

Fagur er fiskurinn...
Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum, bröndóttur á halanum, með rauða kúlu á maganum. Fetta bretta, vanda branda, gættu þinna handa, brátt skal högg á litla lófann detta!

KiP says:
ég ætla inn í eldhús og brasa smá yfir pönnunni, reyna láta þetta ekki bragðast eins og kattamatur for once

Til sölu aðdráttarlinsa á Canon, SIGMA APO 50-500mm F4-6.3 EX DG/HSM

 

 

 

 

Lurkurinn var stćrri í gamladaga

23. desember 2005
Ísland í dagÞorlákur kominn. Fékk 20þús gjafakort í Smáralind frá Skýrr í gær og tilkynnt var að árshátíðin yrði í London. Gist " á hinu glæsilega nýja hóteli Hotel Riverbank Plaza" að sögn Skýrr. Ekki amalegt nema við þurfum að borga sjálf flugið fyrir makann, 35þús. Nú angar Skýrr af kæstri skötu, ég ákvað að míga frekar á steikt egg, látaða úldna og ekki borða það.

10. desember 2005
Ísland í dagHvaða tannkremi manst þú fyrst eftir á þínu heimili? Ef annað foreldra þinna var ekki tannlæknir, og settið ekki komið með falskar, þá var það í flestum ef ekki hreint öllum tilfellum Colcate. Á Íslandi hefur Colcate verið jafn sjálfsagt í huga fólks eins og mjólk, ef ekki sjálfsagðara. Þessi Colcate múgsefjun er eiginlega dáltið scary bara...

10. desember 2005
Miss WorldÉg var að hrofa á endursýningu á Miss World 2005 þar sem Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var valin ungfrú alheimur. Þegar stundin rann upp og hún settist í stólinn þá táraðist ég og brosti í gegnum tárin. Toppiði það! Ef til vill er þessi keppni mekka hégómans en common, notum við ekki öll KREM? Gömul glóð af svolitlu þjóðarstolið brutust fram í tárum, þjóðarstolti hefur farið dvínandi síðan frú Vigdís Finnbogadóttir lét af störfum sem forseti Íslands. Ég held að þjóðarvitund Íslendinga sé búin að vera dulítið bágborin síðustu árin með ekkert framúrskarandi handboltalið, enga hetju sem forseta, engann Jón Pál, og enga stúlku sem ungfrú alheimur. Til hamingju Unnur Birna og takk fyrir að gefa glæðum mínum gust.

8. desember 2005
Ísland í dagSvona er Ísland í dag!: http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=2003&progId=6710 Ekkert nema gott um það að segja. Birkir Freyr! Ég vissi ekki að þú værir að vinna á Dalvík! Hélt þú værir orðinn lögfræðingur eða ráðaneytisstjóri í landbúnaðarráðaneytinu :) Og Árni þú varst náttla ekkert að minnast á þetta við mann, skuldar mér sko dagatal væni hehhee

7. desember 2005
jammsMan einhver eftir 1992? Besta ár íslenskrar tónlistarsögu! Árið sem Pálmi Gunnars og Guðrún Gunnars unnu Landslagið með "Ég man hverja stund". Sigrún Eva Ármanns söng lagið "Um miðja nótt", rafmagnstrommur hljómuðu vel og hljómborð var jafnmikið ef ekki meira möst en rafmangsgíar. Enda eru lög spiluð 1992 mörg hver pottþétt.

7. desember 2005
jammsÓ guð ég fór til læknis í dag eftir 3ja vikna kvalir í kviðnum og hann heldur að ég sé með gallsteina. Fer í allskonar test í fyrramálið, ómskoðun og líkamsvessatökur. Spurningin er, hvað er að mér ef þetta eru ekki gallsteinar. Þetta truflar allt, kemst ekki í ræktina og ligg bara í tölvunni eftir vinnu og fitna. ojoj. Erfðaskráin er í smíðum.

6. desember 2005
jammsNú var átrúnaðargoðið mitt Þorvaldur Bjarni ekki alveg að meikaða, nýja "Hjálpum þeim" útgáfan er bara ekki baun betri en sú 15 ára gamla. Þessi 15 ára þróun stúdíóbúnaðar, reynsla og kunnátta upptökufólks gerir það eitt að skila þessu lagi algerlega dauðhreinsuðu og allt of vélrænu. Réttast hefði verið að keyra masterinn í gegnum gamlann og beyglaðann lampamaganara í lokin. Eða Þorvaldur hefði átt að senda okkur Magga dótið í Protools formati og við hefðum heldur betur masterað þetta jájá bætt jarmandi rollu og skælandi barni þarna í bestu sólóunum og sus-unum.

8. nóvember 2005
jammsDisus hvað Dreamweaver er gay stundum :) Ég linkaði óvart síðustu frétt við blogsíðu og þá leit út eins og viðkomandi væri með einhverfu, þetta skrifast á Macromedia Dreamweaver. Jæja hvað um það þá á eg til sölu Pentium4 2.4ghz, gott MSI móðurborð og Geforce 4600ti skjákort, þetta dót vinnur afbragðsvel saman.

7. nóvember 2005
jammsÁ árum áður sögðu stelpur að þær þroskuðust fyrr en strákar, og loksins fékk ég staðfest að það er bara goðsögn. Hér er td. orðrétt frétt frá Breska ríkisútvarpinu BBC: "Þeir benda á að tiltekin svæði í heila karlmanna þroskist yfirleitt fyrr en í heila kvenna og að minni tengsl séu á milli heilahvela í körlum en konum. Heilinn í drengjum vex hraðar en heilinn í stúlkum. Þessi vöxtur virðist enn hraðari hjá fólki með einhverfu."

5. nóvember 2005
jammsÞórdis og Einar Logi eru að flytja til Danmerkur að skóla sig. Allir vinir mínir virðast flýja land þessa dagana og það verður aldeilis hátíð þegar allur þessi vinaskari snýr heim. Reyndar eru alltaf einhver afföll þar sem sumir setjast að í baunalandinu en ég vona að Einar og Þórdís snúi aftur. já btw. Einar keypti tölvuna...

2. nóvember 2005
jammsBíbbar, þríbbar, hallandi bekkpressa oc co. Það versta sem maður gerir þegar maður kemur úr ræktinni er að líta í spegil og sjá að eftir 9 mánaða þrotlaust púl er maður enn í laginu eins og gamli kallinn í heitapottinum, maginn er ein framstæð kúla og axlirnar eins og snagar. Vantar einhvern tölvu? Ég á eina nýja góða til sölu á 75þús

1. nóvember 2005
jammsGuðfinna kom heim í viku frá Danmörku og það var náttúrulega ákaflega ánægjulegt. Reyndar endaði það með því að við fengum magapest svo herfilega að ég þurfti á sjúkrahús. Annars er ekkert að frétta, ég fór suður um helgina stutt, og ég er hættur að reykja fyrir fyrir meira en viku sem er ákaflega dásamlegt.

13. október 2005
jammsMig dreymdi Robbie Williams í nótt, vona að ég að skrifa nafnið hans rétt en ég er enginn sérstakur fan. Mig dreymdi að upp komst um að hann væri svindlari rosalegur, hann var með örflögu grædda í raddböndin sem gerði hann mjög tónvissan, sumsé ekki falskan. Upp komst um svindlið og hann útskúfaður.

12. október 2005
jammsÉg myndi segja að íbúðin mín sé í ágætu standi, fyrir utan eldhúsið. Uppá síðkastið hef ég verið duglegur að halda við ástandinu nema alltaf skilið eldhúsið eftir þannig að nú er svo komið að diskarnir sjálfir fara að grotna niður í vaskinum undan áhrfum ensíma og niðurbroti frá bakteríum og örverum. Eldhúsið er orðið að sérstöku friðuðu vistkerfi.

9. október 2005
jammsÞá er búið að skýra yngsta stafsættingjann, Þórey bróðurdóttir og Maggi skýrðu son sinn Aðalstein óla sem er alveg frábært nafn. Skírnin var fín og Kalli söng 2 lög, ég spilaði undir í öðru þeirra, "Augun þín" og það tókst vel. Sjáið hvað er að gerast í hagkerfinu með minni ríkisafskiptum og auðveldara aðgengi að peningum, allt til fjandans.

2. október 2005
jammsNú eru nokkrir búnir að klukka mig, þetta er meiri vitleysan, maður á að ljóstra upp 5 persónulegum staðreyndum um sjálfan sig sem fáir vita. Well, hér kemur það: 1. Sjúklega hræddur við kóngulær. 2. Elska Stjórnina. 3. Aldrei prófað fíkniefni. 4. Get varla drullað ef einhver heyrir. 5. Þoli ekki almenningklósett, veigra mér við að snerta nokkuð þar.

1. október 2005
jammsÞá er ég orðinn starfsmaður Skýrr frá og með deginum í dag. Sjá hér og hér. Skrín hefur veirð sameinað Skýrr og allt gott um það að segja. í þessu liggja tækifæri ýmiskonar. Ég kynntist Einar Ragnari öryggisstjóra í nótt og hann er undrabarn í ljósmyndun, ég dýrka myndirnar hans. Hérna er ein af myndasíðum Einars.

11. september 2005
MynDanmerkurmyndir!Ég er kominn heim! Og á meðan eignuðust Þórey og Maggi strák! Það gerir mig að tvöföldum afabróður. Skuti flaug til Wasinton DC í dag 11. sept, hann verður líklega skotinn niður. Hér er ferðasaga Danmerkurferðarinnar minnar og hér eru myndir. Tók slatta af misgóðum tækifærismyndum ofl.

29. ágúst 2005
Smellið til að hlustaViti menn! Ég er að fara til útlanda í fyrsta skipti! Þessi litla vikuferð til Danmerkur er þess vegna afskaplega merkilegur atburður fyrir mig og má ég mín varla fyrir kæti. Allir sem búið hafa þar dásama landið og segja hvergi betra að vera. En hversvegna koma þá flestir heim aftur? Hér eru myndir sem ég tók í golfinu á dögunum.

20.ágúst 2005
Smelliđ til ađ hlustaÉg er farinn á Skýrrsamkundu á Sauðárkrók. Hlakka til að fá gott að borða og vera með vinnufélugunum að bralla eitthvað. Ég er svo heppinn að eiga góða vinnufélaga. Núna í kvöld tengdi ég hljómborðið við tölvuna og samdi stutt ljóð með undirspili, meira að segja má heyra mig gaula þarna undir.

18.ágúst 2005
Guðfinna var að fá sér nýja ferðavél, þokkagripur hinn mesti. Með tveimur 60gb diskum sem er mjög óvanalegt í ferðavélum. Núna stundum við skype og msn webcam alla daga og það brúar bilið milli DK og IS býsna mikið. Sem betur fer styttist óðum í að ég fari í heimsókn til hennar í Danmörku.

17.ágúst 2005
HéSMelliđ hér til ađ sjá skófariđÍ fyrrinótt var gengið á bílnum mínum. Toppurinn var beyglaður niður þvert yfir bílinn. Toppurinn er dældaður þó það sé búið að slá hann upp. Einnig var trampað á skottinu og það er líka dældað. Bæði ég og Lögreglan eru búin að mynda og mæla ansi fínt fótspor á bílnum svona til að eiga sem minjagrip.

15.ágúst 2005
Nýjar myndirÉg var mikið í sveitinni hjá Alla og Gullu í sumarfríinu en það er afar mannbætandi staður. Pabbi er sjötugur í dag, til hamingju. Þau gömlu eru að selja Hrafnagilsstræti 6, 26mills sett á það. Mamma er orðin of gömul og lúin til að geta séð um svona stórt hús. Já og Summi Hvanndal gifti sig um daginn. Einstaklega vel heppnað brúðkaup og ég var þar að mynda fyrir og eftirmyndir. Það er mikil mannraun að sitja við hliðina á Rögnvaldi gáfaða og ætla sér að borða eitthvað, mikil heppni en maður nær að kyngja fyrir hlátri. Guðfinna nemur nú í Viborg í Danmörku fram að jólum. Það er frekar erfitt og ég sakna hennar gífurlega en Skype og Msn létta lífið smá. Guðfinna keypti sér ferðavél um daginn, hrikalega Rolls Royce vél með öllu og núna stundum við vídjófundi dag og nótt.

23. júlí 2005
Nýjar myndirMyndir myndir myndir, nokkrar sumarmyndir komnar inn hér.


M

22. júlí 2005
Við Pétur tjölduðum í Ásbyrgi og rústuðum nýja flugdrekanum, tíndum badminton hænunni og sprengdum vindsængina. Svo fórum við yfir Axarfjarðarheiði og á Þórshöfn, Bakkafjörð, Vopnafjörð og yfir Hellisheiði (úff) og í Atlavík þar sem við tjölduðum aftur. Svo fórum við í dýragarðinn í Klausturseli og svo heim í sveit í heyskap.

10. júlí 2005
Þá er ég kominn í sumarfríi. Föstudaginn var, síðasta daginn fyrir frí fann ég að ég var að fá einhverja flensu og núna á sunnudeginum þegar þetta er skrifað er ég alveg ónýtur. Guðfinna kom um helgina og ég vildi að ég hefði verið hressari svo við hefðum getað gert eitthvað fleira. Reyndar fórum við í gær í Lauga í samkundu í Tröð sem Hanna og Halli héldu. Þrátt fyrir veikindin þá hafði ég reglulega gaman að enda vel mætt af úrvalsliði. Takk Hanna og Halli. Ég vona að ég hressist fljótt svo við Pétur getum farið eitthvað á stúfana.

3. júlí 2005
Flughelgin 2005Fór í sveitina um helgina og það var mangað eins og alltaf. Alli grillaði lamb, svín og kjúkling og allir stórðu á blístri. Pétur er hjá mér og verður næstu 3 vikurnar eða svo. Það er verður frábær tími. Það styttist í sumarfrí og spurning hvað maður brallar. Guðfinna kemur um helgina og þá verð ég glaður. Kíkkið á mbloggið

27. júní 2005
Flughelgin 2005Flughelgin 2005 var um helgina og það er eitthvað sem ég hlakka ávalt til eins og barn hlakkar jólanna. Því miður viðraði ekki til flugs í Rvík þannig að stór hluti listflugsvélanna komst ekki norður. Á Laugardaginn var keppt í listflugi. Sunnudagurinn var alveg glataður, auglýst hafði verið listflug og svifflug en ekkert gerðist og var Arngrímur sá eini sem hélt uppi fjöri.

20. júní 2005
Akureyri er hćttuleg ađ nćturlagiJá seisei mér er illt í nefinu enda nefbrotinn. Fer í skurðaðgerð á fimmtudag þar sem ég verð svæfður og nefinu púslað saman. Við Pétur Ívar áttum góða helgi saman ásamt Hamstri Finn. Já hamsturinn hans Péturs heitir Hamstur Finnur og er hvítur og latur. Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af hömstrum eftir að hafa verið bitinn af einum þegar ég var lítill.

14. júní 2005
AkureyriFlaug suður um helgina og mætti í skrall á Grettis. Held ég sé kominn í ölskuld á grettis. Það verður jafnað út. Við fórum svo í bæjinn og það besta sem skeði þar var Hlöllabátur. Mig dreymdi hræðilega martröð í gær. En hvað um það, nú er sumarið komið og ég hlakka til helgarinnar þar sem ég og Pétur munum bralla sitthvað.

8. júní 2005
Akureyri siluettSkaust í gær eftir vinnu austur í sveit þar sem Doddi umfelgaði mig :) Svo á þegar ég kom heim um miðnætti tók ég nokkrar sætar siluett myndir af Akureyri. Ég held ég sé að verða gamall, þarf meiri svefn en áður fyrr og endist skemur á skrallinu. Heimur stórversnandi fer. Ég ætla suður um helgina að knúsa Guðfinnu puðfinnu páfagauk.

6. júní 2005
pétur ađ borđa morgunmatHvernig finnst ykkur þessi mynd? Þetta er Pétur Ívar að borða morgunmatinn sinn, og horfir hugsandi út um eldhúsgluggann. Myndin er ekki "croppuð" eins og sagt er, einungis gerð svarthvít og skerpt (sharpen). Ég er í skýjunum yfir þessar mynd. Núna er ég að grenja í Þórhalli í pedromyndum að finna handa mér gelatín Polarizer á gleiðlinsuna...

6. júní 2005
ojojÉg fór suður á fund um helgina og út að borða á ónefndu Ítölsku veitingahúsi. Þar var allt í senn, dónalegur þjónni, klósett sem minnti á Staðarskála um verslunarmannahelgi, og þetta týpíska setuhlaðborð þar sem fólki er skammtað of lítið. En þetta er máski bara svona Ítalskt thingie og kannski fór þjónninn einfaldlega svona í taugarnar á mér. Reyndar bætti fylgdarliðið þetta allt upp með nærveru sinni. Kynntist frábæru semsagt frábæru fólki um helgina, starfsmönnum Skýrr. Þeir tóku okkur í * í keilu áður en við fórum út að borða. Svo var haldið í bæjinn og Maggi Örn straujaði i kortið öllum til skemmtunar. Hann fær í staðinn konunglegar móttökur þegar hann á næst leið hjá.

1. júní 2005
MyndirÞegar ég sit hér í vinnunni kl 23:16 í Skríni og endurræsi nokkra servera er mér hugsað til baka til þeirra skemmtilegu skipta þegar ég var í hljómsveitum og spilaði á böllum. Er ekki kominn tími til að endurlífga þessi mál soltið? Ég auglýsi hér með eftir músíkölskum einstaklingum á aldrinum 18+ sem telja sig frekar færa á trommur, gítar og bassa. (Maggi þú ert alltaf á sjó sóóó..). Athugið að ég er harður hljómsveitarstjóri og eingöngu verður spilað frumsamið popp á íslensku. ps. Í dag erum við Guðfinna búin að vera saman í 2 ár.

30. maí 2005
MyndirMyndir myndir! Brallað var ýmislegt um helgina, Einar Logi, Hallinn og ég fylgdumst með stórslysaæfingunni og fórum svo yfir Vaðlaheiði í Fnjóskadal að skoða hugsanleg sumarbústaðastæði. Um kvöldið fórum við ásamt kvinnum og Fjólu upp í Mývó og í gjána. Það voru þó bara fjórir sem höfðu það af að fara á kaf.

30. maí 2005
Skyr er gott í hófiMjá híhí svona svona fínt. Ég hlýt aö finna mér tíma til að koma myndum inn síðan um helgina. Flugslysaæfingin og trippið í gjána. En fyrir ykkur wiggarana þá: 13/08/2005 Reykjavik - ICELAND: ACLICE COOPER + WIG WAM. Soltið fyndið að sjá hnakkana á rúntinum með Norska eurólagið í botni, þar sem þetta er hreinræktað sudddaglysrokk. Gott fyrir mig þar sem ég er allsherjaralætuglyshnakkasuddatónlistaraðdáandi.

26. maí 2005
MyndirGuðfinna fékk inn í teikniskóla í Danmörku og við förum út í ágústu að kanna staðinn. Skilst að Viborg sé gömul lítil borg. Ég get einfaldlega ekki beðið eftir sumarfríinu. Ég ætla að mynda hvert strá á landinu í sumar. Mjámm. Jæja hér er algott lag og svo eru hér nýjar myndir síðan á mánudagsmorgunn hvítasunnuhelgarinnar.

18. maí 2005
Jón ColgateÞetta var rosaleg helgi. Óvænt partý hjá okkur Guðfinnu á föstudagskvöldið. Svo var ég að taka brúðkaupsmyndir í þessu alfínasta brúðkaupi í Sveinbjarnargerði. Þar spilaði ég einnig dinner og eftir það fórum við Guðfinna á Greifana og höfðum gaman að. Tók með þeim lagið meðan hljómborðsleikarinn brá sér frá. Well.. á sunnudagskvöldið komu Teddi og Kristján og saman sulluðum við fjögur þangað til við Guðfinna fórum á Greifana en þeir voru aftur að spila á sunnudagskvöldið á Oddvitanum. Eftir ballið komu Greifarnir með okkur Guðfinnu heim. Það er gaman að syngja með þeim Skriðjöklalagið "Hryssan mín blá" heima í stofu. Svo kom morgunn, nágranninn hringdi illur, og þeir kvöddu í morgunsólinni.

2. maí 2005
KIPMig dreymdi í nótt: Byrjar með því að það er kvöld og það er eins og ég sé húsvörður UNAK. Ég fer út niðri og loka á eftir mér. Labba upp fyrir framan og þar inn, svo labba ég í gegnum kennslustofu en þar er verið að kenna bakstur, ég heyri eina setningu frá kennaranum. hann segir með mikilli áherslu, "gæði baksturins". Þegar ég geng í gegnum kennslustofuna og í gegnum herbergi þá sé ég muffins sem hafa ekki lyft sér. Þar labba ég niður hringstiga og út.
Allt í einu er ég kominn í veislu eða blót þar sem ég sit við langborð líklega og öll athyglin beinist að Bubba Morthens sem er þar ungur að árum og syngur "Trúðu á drauma" sem er Rómeó og Júlía lagið. Minnir að á móti mér hafi Ingólfur bróðir setið. Allir brostu og hlustuðu á Bubba af innlifun eða fögnuði yfir því að hann skildi vera þarna með okkur og syngja fyrir okkur. Mikill feginsheiður.

29. apríl 2005
Nýja linsan mínMaggi sagði að ég ætti að uppfæra síðuna.. Jámm hmm jú ég var að kaupa nýja linsu. Verðið er með mörgum mörgum núllum. Sigma 50-500mm F4-6.3 EX APO RF HSM heitir hún og á Digital vél er hún 800mm í 1.6 crop factor. Guðfinna er kom í fyrradag verður yfir helgina. Fjörðurinn var næstum alhvítur í morgun þannig að það er ekki sumar í dag.

18. apríl 2005
Adobe kaupir MacromediaAdobe er búið að kaupa Macromedia fyrir 3,4 biljónir dala. Ég öskra ef Adobe fer að setja eitthvað Golife marmelaði í Dreamweaverinn. Ég fór suður í rokið um helgina að hitta mína heittelskuðu Guðfinnu. Þessi helgi var allt of stutt, þetta var eins og að fá einn bita af bestu súkkulaðiköku í heimi en eiga samt heila sneið.

11. apríl 2005
jammsVeltið fyrir ykkur hvort sé betra að vera svolítið "grænn" eða þá "bláeygður". Að vera vera soltið grænn þýðir í sjálfu sér lítil reynsla, en að vera bláeygður þýðir líklega dálítið utangátta eða grunnhygginn. Það kastar ljósi á það að ef e-r er svolítið "grænn" þá getur hann ennþá lært og hlotið reynslu, en ef annar er svolítið "bláeygður" þá er hann bara þannig og verður. Mikið rosalega endurspeglast þetta í þjóðfélaginu. Nefnilega vinstri grænir eru svolítið "grænir" með alla sína öfga. Þeir geta þó enn lært, því grunnhugsunin hjá þeim er mjög heilbrigð. En svo aftur hægrimenn, bláa höndin og sjálfstæðismenn yfirleitt, þeir eru þá bláeygðir. Þeir geta eignast auð og völd, þeim finnst ekkert annað skipta máli, og þannig verða þeir alltaf af því þeir eru svolítið - bláeygðir. Mikið rosalega er ég glaður að vera fagurgrænn og svolítið fallegur drengur.

8. apríl 2005
KIP FM!!!Lokaútgáfa MSN Messenger 7 er komin út. Nokkar nýjungar, þar á meðal er hægt að sýna fólki hversu brenglaðann tónlistarsmekk maður hefur með því að sýna life status í msn hvað maður sé að hlusta á þá og þegar. En af öðru, hér er vídjó af Þorgrími sem dó áðan sem betur fer. Kynntist honum í morgun og okkar deili urðu ekki löng. Sjá vídjó.

31. mars 2005
KIP FM!!!Já nýjasta sko alllra nýjasta æðið er að hlusta á KIP FM! á netinu. Þar gefur á að hlusta breglaðasta tónlistarsmekk seinni tíma, smekkinn minn. Annars er ég veikur heima og kemst ekki í ræktina og er með samviskubit þessvegna. En leiðbeiningar hvernig á að hlusta á KIP FM eru hér: http://www.kip.is/hjalp.jpg (athugið að stöðin er ON-AIR bara stundum)

28. mars 2005
Kaffi AkSálin stóð sig með prýði á miðvikudagskvöldið. Guðfinna var hjá mér yfir helgina og það var ljómandi. Svo skaust ég í sveitina í gær og gisti ásamt syni mínum hjá Alla og Gullu. Tók ágætar myndir af Goðafossi áðan á leiðinni heim. Núna er ég að hugsa um að smala liði í körfu einhversstaðar á eftir.

21. mars 2005
jájájáJájájá svona líka flott júróvisjonlagið, Þorvaldur Bjarni er náttla átrúnaðargoðið mitt út í eitt og Selma er fulkomin þannig að súpan virkar. Ekkert að frétta enda skrifa ég aldrei neytt hér. Bara vinnan og ræktin. Soðin ýsa, kartöflur, eggjahvíta, KEA skyr, túnfiskur, grænmeti, ávextir, harðfiskur, AST prótín, kreatín, vítamín og lýsi. Svona líka hollur kip. Elska ykkur öll..

6. mars 2005
Guđfinna - ég - FjólaFór í Skrínpartý hjá Díu og Jóni Inga og þar var stuð. Svo fór liðið á krána og söng í karókí. Ég tók "My way" með Sinatra. Guðfinna var hjá mér um helgina og það var stuð. Hún er að sækja um í teiknimyndaskóla í Danmörku og verður það löng fjarbúð. Ég reyni að komast sem oftast þangað í heimsókn. Ég er búinn að minnka fitu% úr 18,5 í 14% á einum mánuði :)

2. mars 2005
Myndir síđan á afmćlinu mínuÞá eru stórgóðar myndir síðan um síðustu helgi komnar inn. Helstu fréttir eru þær að eins og sumir vita þá erum við Guðfinna í sambúðarpásu og ég er einn í kotinu og einbeiti mér þessa dagana að ræktinni og hollu mataræði. Það er æði. Endilega kíkkið á myndirnar úr sveitinni og sjáið hundinn fljúgandi.

28. febrúar 2005
MyndirVið Pétur áttum góða helgi í sveitinni þar sem fjölskylda mín þar hélt upp á afmæli mitt og Jóa. Við fórum öll á dorg á Arnarvatni í gær og eitthvað veiddist. Ég tók slatta af góðum myndum sem ég set inn við tækifæri. Einnig þrusaðist ég um á Grissly-num hans Hemma (fjórhjól) og Fjólmundinum hans Alla (vélsleði).

17. febrúar 2005
Kaldur vetrarmorgunnÉg var að æfa mig á stóra hljómborðið mitt áðan og reyna að viðhalda Jerry Lee Lewis hæfileikunum en þegar leikurinn stóð sem hæst datt um koll frissinn minn fríski i klaka, rann yfir borðið og niður í nóturnar. Þetta er veit ekki á gott vegna þess að aðeins 15 míntútum áður hellti Guðfinna sínu glasi yfir stofugólfið. Þetta veit á ragnarrök.

11. febrúar 2005
Pétur á bryggjunniJabb haldiði ekki að Pétur sé farinn í ferðalag til baunalands, dásamlegt fyrir hann. Guðfinna blandaði besta skyrboostið hingað til áðan. Vatsmelóna, hinber (smá mygluð) og jarðaberja KEA-skyr. Best bragðandi skyrboost sem ég hef smakkað. Ei vildi ég minni maður vera og blandaði saman restinni af ískápnum og úr varð eitthvað framandi.

7. febrúar 2005
sorgÞað er mér alveg á huldu og með öllu óskiljanlegt hvernig mér tókst að missa af þorrablótinu heima. Þetta er líklega sá atburður sem ég hlakka mest til á hverju ári, að standa í hóp með jafn vel gerðu fólki og Reykdælingar eru, og syngja "Vel er mætt"-Sjá hér. Annars þá er flest við það sama og bráðum kemur betri tíð.

3. febrúar 2005
mjammVið Guðfinna erum byrjuð í ræktinni af alefli og okkur itl aðstoðar er Jón Ingi ACE einkaþjálfari. Ekkert nema gott mál. Ég og kollegi minn í Skríni förum út á land í kvöld að tölvustússast og komum aftur líklega annaðkvöld. Ég fékk pakka í gær uppúr þurru frá ónefndum vini mínum og hafi hann mikla þökk fyrir. Alltaf gott að fá gott lesefni.

27. janúar 2005
Vottađ nördHæ. Ég skrapp suður á föstudaginn var og tók Microsoft próf í Rafiðnaðarskólanum, náði og er núna vottaður Microsoft sérfræðingur. Veivei. Vottaður nörd. Svo var haldið upp á það um kvöldið. Annars er allt við það sama í skammdeginu. En eitthvað varð ég að skrifa, það skiptir engum togum. Akkurat. Mikið rétt. Blablabla.

7. janúar 2005
SpangirÞá er 2005 komið. Ég er kominn með spangir að ofan og þá lokast víkurskarðið með tímanum. Ég býst við því að grennast mjög svo í kjölfarið vegna þess að ég get ekki tuggið að nokkru viti, ég er eins og gamalmenni, það þarf allt að vera vel soðið. Já árið 2004 var merkilegt eins og öll mín ár. Við Guðfinna fluttum úr Örk í Eyjafjarðarsveit í Eyrarlandsveg á Akureyri og erum þar enn. Fyrir stuttu fékk ég mér afbragðs myndavél Canon 20D og alls kyns aukahluti. Í gær eftir vinnu tók ég þessa mynd. í Kvöld fljúgum við suður og förum í giftingu á morgun. Annað kvöld ætla ég að kíkka í bauk með Geira því hann á afmæli. Í tilefni starfsloka Geira hja ískraft Smiðjuvegi samdi ég smá vísu:

Starfslok Geira.  
Á honum er ekkert haft!
Ekki heldur leg..
En hann dregur Íssins kraft!
áfram Smiðjuveg..
Saman vorum við um senn,
sælt á ekki að vara.
grátið ekki gæfumenn,
Geiri þarf að fara.


Minni á myndavefinn :)
Myndavefurinn


 


 
kip.is |