Kip.is
Kip.is er bara flipp, ég hef frekar litlu að koma á framfæri, en það er gaman að vera týpískur, vera með síðu og kynna sig... ( klént er gott?)

Ég er Microsoft Certified Professional

Hvað er ég
Manneska. Frekar hugsandi ef eitthvað er, vinn sem kerfisfræðingur en í frístundum stunda ég útivist, hjóla, spila á hljómborð, hanna grafík, tek myndir, flýg flugmódeli, knúsa Guðfinnu og hugsa og hugsa um lífið og tilveruna. Út á við var ég lengi þekktur sem Diddi í Ásprent og síðar Diddi í Skríni (Skýrr). Vinir mínir kalla mig ýmist KIP eða Didda. Guðfinna mín kallar mig Kipaling :)

 

Fegurð
Fegurð lífsins er rosaleg þegar maður tekur eftir henni. Hún er allstaðar, maður er bara yfirleitt svo leiðinlega upptekinn af sjálfum sér að þetta fer allt framhjá manni.

- Forsíða
- Gestabók!
- Sagan um KIP
-
kip.is 2003 2004 2005 2006
- Myndir
- Mblog
- Flugdagbók (nýtt!)

ohh svo dædur

Smellið hér fyrir neðan til að ná í Picasa, ég mæli með því!

 

Fólk:
Trausti
Guðfinna
Einar Logi albesti
Þórdis Úlfars
Hrönn látúnsbarki
Gaui á Grísará
Teddi hetja
Þórey og Maggi
Símon fursti
Geiri frændi
Lára vinkona
Doddi frændi

Hanna Dindlingur
Flugmódelfélag Akureyrar
Gunni Bakk
Vinnan mín
Þingeyjarsveit





Skoðið stream frá Viborg:
Kringum Viborg
Upplifun, náttúran
Atvinna og nám
Allskonar listalíf
Verslun og bæjarlíf
Nánasta umhverfi

Leiðbeiningar fyrir Lundúni:
Búðarráð
Leikhús
Markaðir
Skoðunarferðir
Söfn
Veitingahús

(Ég ætla ekki að eigna mér heiðurinn af þessu, þetta er allt saman stolið...)

Fróðleikur:
Er mjólk, eins og hún er unnin í dag, í raun jafnholl og af er látið? Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ er á.
[meira...]

Fagur er fiskurinn...
Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum, bröndóttur á halanum, með rauða kúlu á maganum. Fetta bretta, vanda branda, gættu þinna handa, brátt skal högg á litla lófann detta!

Ég hef komist á það lag
og iðkað heima og víðar
að fresta þeirri dáð í dag
sem drýgja mætti síðar.

 

 

 

 

 

Gógó pían mín!

11. desember 2006
Við Guðfinna fórum suður um helgina. Fórum í Smáralind, Kringluna, Kolaportið ofl. Lentum svo í því að vera fyrst á slysstað á vesturlandsveginum þar sem banaslys varð. Svo héldum við áfram og komum heim með taugarnar þandar. Þetta verður eitthvað fast í huganum á næstunni. Teddi gaf kisa meðan við vorum í burtu og er náttla algjör hetja að nenna því.

28. nóvember 2006
Ég var að fá mér nýja flugvél! Allt um það hér. En nú styttist í jólin og deeem hvað ég veit ekkert hvað á að kaupa í jólagjafir. Hvernig væri að sleppa þessum jólapökkum og halda upp á fæðingu Jesú krits for once? Svona hátíð ljóss og friðar. Ég er einnig á pólitísku flæðiskeri staddur þessa dagana, það er enginn flokkur þess verður að vera kosinn.

13. nóvember 2006
Það er kominn vetur, tók einhver eftir því? Það þýðir í mínum augum bara eitt. Bráðum kemur annað sumar! Sumar með blómum, sumar með grænum túnum, ilmur af slæjum, og illmur af brunnu módeleldsneyti. Næsta sumar verður Douglas DC-3 módelinu mínu flogið, það verður fjör. Hvað á maður að gera þangað til?

28. október 2006
Já ég get ekki orða bundist og sagt hvað ég er æðislegur. Ég er hreint út sagt frábært í alla staði og svo er ég einnig svo anskoti rosalega myndalegur. Langaði bara að koma þessu opinberleg á framfæri. En annars er minna en ekkert að frétta nema hvað ég rússstaði 1 stk. flugmódeli í morgun þegar Giles minn fór í jörðina. Sjá hér.

30. september 2006
Það er bókstaflega allt að gerast í flugmódelsportinu. Ég er búinn að kaupa tvær aðrar vélar og á nú orðið fjórar. Núna var ég fá mér Giles202 aerobatic vél með 70 4stroke mótor og DC-3 með tveimur 40 4stroke mótorum. Í fyrramálið verður Giles flogið á Melunum. Guðfinna heldur upp á afmælið sitt í kvöld og ég verð líklega ekki ferskur í fyrramálið.

17. september 2006
Var ég búinn að segja frá hneykslinu mikla og sorginni sem fygldi því? Við áttum óskaplega fallega læðu er hét Skotta. Mánuðum saman var hún uppáhald okkar, og fór ég ósjaldan í gögnu með hana í bleykum taumi. Þá komu gestir og bentu okkur á punginn á henni. Hún var hann!! Í margar vikur vildi ég ekki að líta framan í köttinn, en núna hef ég tekinn hann í sátt.

16. september 2006
Það sem er að frétta er helst að lesa í flugdagbókinni. Jú ég var að vinna í Borgarnesi um daginn og gisti í Mótel Venus. Æææ ég mæli ekki með staðnum. Svo er myndavélin mín til sölu. Canon 10D, batterygrip, 3 ný batterý, ný Canon 50mm linsa og nýtt 512mb minniskort. Nú þarf ég að fara drífa mig í sveitina að smíða nýja flugvél.

21. ágúst 2006
Við Guðfinna fórum suður a Menningarnótt en það má skipta þeim viðburði í menningarkvöld og ómenningarnótt. Svo bauð Sverrir Gunnlaugsson vinur minn mér í útsýnisflug á vélinni sinni og ég fékk að taka í. Lentum á Tungubökkum þar sem félagar okkar í módelsportinu voru að fljúga módelum og allir urðu sólbrúnir. Sverrir fór svo í laxveiði á TF-EGD.

4. ágúst 2006
Viltu vita allt? Smelltu þá hér, það hjálpar, því með því að lesa allt og lifa allt sem þú getur kemst þú nær því að vita allt, nær en ekki nálægt. Þess vegna er svo gott að hafa menntað fólk í hlutverkum þess að velja fyrir mann hvað sé manni fyrir bestu. Ha nú? Veit ég ekki hvað er mér fyrir bestu? Jú það.

4. ágúst 2006
Þetta var stór helgi og vel tekið á því. Skemmtilegast var þó sunnudagskvöldið þegar margir komu í heimsókn í afmæli Gígju og úr varð ágætispartý. Ég er að spá í að selja stóri Canon 10D myndavélina mína ef einhver hefur áhuga. Þetta er til að fjármagna frekara flugmódelbrask :) Það er ekki alveg ókeypis það hobby.

4. ágúst 2006
Spilaði á tónleikum í gærkveldi fyrir miljón manns á Græna hattinum með Hvanndalsbræðrum. Þetta voru frábærir tónleikar, sándið, spilið og allt tókst mjög vel og það var rífandi stuð. En djöf... var mér heitt. Fór svo á hattinn í dag til að ná í hljómborðið og þar á eftir inn á Mela. Ég er að bíða eftir Guðfinnu en hún er koma heim með HLÖLLA handa mér :-)

31. júlí 2006
Lífið snýst bara um flugmódel. Guðfinna mín er alveg ótrúlega skilningsrík og módelvæn. Takk Guðfinna. Út af þessu nýja æði mínu skrifa ég ósköp lítið hér á forsíðu kip.is. Það er frekar að ég skrifi í flugdagbókina á http://www.kip.is/modelflug/modelflug.php - og já, ef einhvern langar að prófa sportið þá hvet ég alla til að skoða það nánar af því þetta er snilld.

18. júlí 2006
10 fokking lítrar! :-) Eins og maðurinn sagði.... Já það kostar að fljúga þessari rellu flesta daga. Ég er kominn með sérlega flugdagbók til að.. já til hvers eru dagbækur? Ég hef aldrei skrifað dagbók. Líklega vil ég geta fylgst með þróun þessara mála hjá mér. Dagbókin er hér: http://www.kip.is/modelflug/modelflug.php

12. júlí 2006
Ég er búinn með 7 lítra af módelbensíni á nokkrum dögum. Ég geri ekki annað en að fljúga og er orðinn nokkuð leikinn þó ég segji sjálfur frá, að minnsta kosti miklar framfarir á nokkrum dögum. í gær æfði ég snertilendingar í roki, og í kvöld flaug ég í dúnalogni eins og vitleysingur. Þetta er svo æðislegt sport að þið bara trúið því ekki.

10. júlí 2006
Það svo gott að vera í sumafríi. Við fórum á ættarmót á Reykhóla og eyddum svo viku í Reykjavík. Pétur fór á kostum í keilu og fílaði sig vel í spilakössunum. Síðustu viku eyddum við Pétur í Vallholti og flaug ég flugmódelinu á hverjum degi heima í sveit. Ýmisleg flugóhöpp urðu og flaug ég td. á húsið hans Hermanns. Skoðið Mbloggið

20. júní 2006
Það er nóg að gera í flugmódelsportinu. Gaui er búinn að kenna mér að fljúga rellunni minni og gekk það stórslysalaust. Ég vil benda ykkur á tvær heimasíður. Það eru flugmodel.is sem er heimasíða Flugmódelfélags Akureyrar sem ég er meðlimur í, og heimasíða vefverslunarinnar modex.is. Hér er mynd af okkur Guðfinnu síðan á föstudagskv.

22. maí 2006
Ég sagði greind Einar, ekki fegurð!!!Fínt, kominn á nýlega Súbarúbifreið, aftur kominn með góða myndavél (Canon 10D) og flugvélin mín orðin flughæf. Gaui góði á Grísará var ofurgóður og fínstillti hana fyrir mig og veitti henni smiðshöggið. Hann mun fljúga jómfrúarfluginu á næstu vikum. Meðalgreind Íslands mun hækka á næstunni, Einar Logi er að koma heim! Ég er afspyrnu ómögulegur bloggari.

10. maí 2006
Flugmódel! Ég gekk í FMFA fyrir skömmu og er búinn að fá mér mitt fyrsta módel, keypti byrjendapakka, bensínvél með 1.7m vænghaf. Ef einhver getur lánað mér aðstöðu í nokkra daga þá yrði ég kátur. Svo er það að frétta að í dag var ákveðinn maður dæmdur fyrir að nefbrjóta annann aðf. nótt 17. júní 2005 eins og lesa má um í opinberum gögnum.

7. maí 2006
Ég spilaði á öflugum tónleikum síðastl. fimmtudagskvöld. Færri komust að en vildu og þurfti að loka húsinu meðan það var enn biðröð. Þetta voru útgáfutónleikar Hvanndalsbræðra og var ég Gestaspilari ásamt Pétri í Tónabúðinni. Áðan fórum við Guðfinna á Mission Impossible 3 og mér finnst eins og ég sé of gamall fyrir svona sprengingar og læti, fæ bara taugaáfall.

26. mars 2006
BindiÉg settist niður sallarólegur í dag og stillti á Poppland sem var þá að byrja, og hýrnaði yfir mér þegar fyrsta lagið byrjaði. Það var lagið Halli Skúla af plötunni Hvanndalsbræður ríða feitum hesti, sem kom út í dag. All skondin upplifun að heyra sjálfan sig spila byrjunarlagið í popplandi... :-) Hvet alla til að mæta á útgáfutónleikana 4. maí!

19. mars 2006
Síðasti vetrardagur og mig langar í vélsleða. Við fórum á Egó um daginn, fínt ball. Páskarnir voru frábærir í sveitinni, kalkúnn og alles hjá Önnu og Hemma og mikið sleðast. Við brugðum okkur á Í svörtum fötum á sunnudagskvöldið. Nú líður að 4. maí en þá eru útgáfutónleikar Hvanndalsbræðra. Ég spila á nýju plötunni þeirra og verð þar spilandi og trallandi.

22. mars 2006
Árshátíð SkýrrVið erum komin heim heil á húfi frá Lundúnum! Ágætis ferð þar sem við skemmtum okkur á Árshátíð Skýrr 2006 og skoðuðum Lundúnir um leið. Þetta var mín fyrsta ferð í dýragarð og all nokkur upplifun að koma í stórborg. Alveg hreint stórkostlegar byggingar og ýmsar furður. Annars þá eru ferðasagan hér og myndir hér.

17. mars 2006
Djamm 3. og 4. mars 2006 Þá er það London á eftir, árshátíð Skýrr á annaðkvöld á mjög góðu hóteli við bakka Thames í miðbæ Lundúna. Eins gott að fara ekki með grunsó bakpoka í lest þar, enda sjálfsagt með 8 blýkúlur í hausnum eins og gaurinn þarna. Meira um þetta þegar ég kem heim. Pabbi ætlar að koma í Eyrarlandsveginn og klappa kisu á meðan.

5. mars 2006
Djamm 3. og 4. mars 2006 Ég er orðinn eldgamall, varð 27 ára um daginn. Við Guðfinna fórum með Val, Kristínu, Gústa og Eika á Wig Wam í Sjallanum á föstudagskvöld. Wig Wam spila bara ekki tónlist við mitt hæfi. í gærkveldi fórum við í partý hjá Eddu og Dodda og svo í Sjallann á Í svörtum fötum. Það var ólíkt betra ball en Wigwam. Hér eru myndir frá djamminu bæði kvöldin.

14. febrúar 2006
Forsjáhyggja?Þegar ég var 6 ára var ég sendur niður á tún til að ná í Rússajeppa. Þegar ég var 6 ára var ég látinn slóðadraga á dráttavél. Þegar ég var 7 ára var ég farinn að tætla (snúa heyi), 8 ára raka saman fyrir heyhleðsluvagn, 9 keyra skellinöðru, 12 ára átti ég minn eigin bíl sem ég ók eins og druslan dróg. Í dag 20 árum seinna væri þetta fréttaefni. [Meira...]

12. febrúar 2006
égJæja allir mínir vandamenn sem notið Windows 98. Nú er Mr. Gates formlega hættur að styðja við bakið á því annars bráðónýta stýrikerfi Windows 98. Þannig að þeir sem nota það til aðgangs að Internetinu eru hér með dæmdir til að fá óværur og ærsladrauga í tölvurnar sínar. Þetta á einnig við um Windows Me.

7. febrúar 2006
égSveimérþá hvað hættareykjasyndromið er farið að koma fram í eldhúsinu. 3ja kvöldið í röð þar sem eldað er uppúr tímariti.. Nei reyndar impraði ég humarinn á sunnudagskvöldið. Ég vil Birgittu Haukdal í forsetaframboðið næst. Á einhver á spólu með Hausverk um helgar þegar ég fór á kostum í beinni frá Sjallanum um árið? My 15 minutes of fame.

30. janúar 2006
Akureyri er góður staður fyrir líkamsræktOj. Ég hætti að reykja fyrir nokkrum mánuðum og viti menn að skvabbið solis sullast framan á mig. Hreint stórkostlega glæsilegt. Vildi að ég væri jafn sprækur og helvítis kötturinn, hann brennir mestu og stækkar vöbba og bein uppí rest. Árskortið mitt rennur út á morgun og verð ég að segja að því var vel varið, náði upp slatta massa upp á ári, og some skvabbi líka :)

26. janúar 2006
AfríkaSeychelles eyjar! Þangað fer ég etv. í vor að vinna í nokkrar vikur við uppsetningu á tölvubúnaði. Má ekki segja meir. En þetta er soltið flott eyjaparadís norð austan við Madagaskar um 1600km frá meginlandi Afríku. Hér má sjá Vídjó frá eyjunum. Tölvur, pálmatré og hvítur sandur.. Hljómar vel.

26. janúar 2006
Kipalingur!Nauts ég bauð í þetta fína 5 herb. einbýlishús um daginn. Móttilboðið var einni miljón of mikið fyrir minn góða smekk þannig að ég sagði pass. Ég auglýsi hér með eftir 4-5 herbergja húsnæði til leigu eða sölu sunnan Glerár og ekki á Eyrinni. Ég er mjög kröfuharður á staðsetningu. Ég þarf að koma 1 stk. hljómborði, Guðfinnu, Pétri, Fífí og mér fyrir.

26. janúar 2006
Ég tók þessa mynd alfveg sjálfur vúhú!Hæ. já ég veit, það var kominn tími til að orga eða blogga. Ég og Gu eigum þessa fínu kisu AKA læðu AKA Skottu og AKA Fífu. Ég kalla hana Fífí! Hún er andsetin sálu þrumuguðs með athyglisbrest og ofvirkni. En stundum slakar hún á eins og á myndinni hér að neðan. Þetta á víst að verða inniköttur, eins sorglegt eins og það hljómar (já Fífí ég skil þig).


Soltið pimplegur ekki satt

Minni á myndavefinn :) Þar er ekkert nýtt síðan í fornöld
Myndavefurinn


 
kip.is |