6. janúar 2008
Gleðilegt nýtt ár. Þetta voru ágæt jól. Rúmlega 2 metra fura í stofunni, góður maður og gaman var að syngja aftansöng í Akureyrarkirkju. Þó vantaði Pétur Ívar á aðfangadagskvöld en hann verður vonandi hjá okkur næst. Á morgun er þrettándinn og felli ég þá fánastöngina til að ná aftur niður seríunni. Þessi bláa spíra sést vel, sá hana úr fokkernum yfir Akureyri í fyrradag.
23. desember 2007
Kórinn söng jólasöngvana sunnudaginn 16 desember sl. Það var mikið ævintýri fyrir mig. Flutt var meðal annars í heild sinni Messe de minuit eftir Marc-Antoine Charpentier en sú messa er flutt á latínu. Í dag og gær sungum við á ýmsum stöðum um bæjinn en söngurinn upp á Hlíð í gær fannst mér eftirminnilegastur. Værðin í loftinu þar var sérstök og góð.
9. desember 2007
Ég var að versla píanó og kemur það á morgun. Það verður híft upp með kranabíl austan megin við hús, yfir húsið og slakað niður á svalirnar vestan við. Ég vona að það slitni ekki niður yfir húsinu því 400kg píanó myndi fara í gegnum þakið. Annars er ég búinn að henda út fullt af gereftum til að geta málað fyrir jólin því nýjar hurðir koma eftir áramót.
9. desember 2007
VIð hjúin fórum í skírn Snarfríðar Lukku Nei Grín Rakelar í Akureyrarkirkju í gær. Þar á eftir fórum við á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þar sem söngfélagið Sálubót og Garðar Thor Cortes sungu með. Ég var ekki hrifinn af Cortes en Sálubót er mikið snilldar söngfélag sem syngir stórkostlega vel. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri.
29. nóvember 2007
Nú er nóg að gera í kórstarfinu. Nóg um það. Nú er nóg að gera í að safna búnaði í nýja 2x2 Katana listflugvélina mína. Mótorinn er á leiðinni frá þýskalandi ásamt 3ja blaða Carbon Fiber propp og fleira. Gaman að því. Nú vil ég hvetja alla til að skoða myndasíðuna hennar Guðfinnu www.flickr.com/photos/gudfinna en Guðfinna er dugleg að bæta inn myndum.
1. nóvember 2007
Að tjá sig í skrifum og söng, máli og myndum er allt komið frá rótum þess eðlis okkar að skapa í kröngum okkur, það er, að miðla lífinu. Ég vil hvetja fólk til að ganga annars lagið út í dyr og syngja eitthvað út í buskann, það er hressandi. Það þarf ekki að taka langa stund enda nágrannarnir líklegir til að hringja í lögregluna ef þetta er gert lengi í einu.
14. október 2007
Ég er kominn í kór Akureyrarkirkju og kvet alla til að mæta nú sem fyrr í messur. Kórinn er fullur af Þingeyingum sem er náttúrulega afar jákvætt. Annars er lítið að frétta nema ég verð í Búddapest um næstu helgi á Árshátíð EJS. Vonandi kemst maður klkklaust frá því. Ég minni alla á að láta mig vita ef fréttist af píanói til sölu.
4. september 2007
Við fórum suður um helgina akandi og brá ég á það ráð að taka með stórt flugmódel svo Guðfinna gæti ekki verslað í Reykjavík stóra IKEA hluti :) Neinei, ég fór suður með nesjum og var þátttakandi í merkisviðburði hjá Flugmódelfélagi Suðurnesja. Þar Flaug ég og grillaði meira að segja pylsur um stund. Sjá myndir hér
3. september 2007
Meðalgreind Akureyringa hækkaði þónokkuð um daginn. Trausti Dagsson og frú fluttu í bæinn alla leið frá Danmörku. Trausti keik í heimsókn og þá sló greindarvísitölumælir hússins út og hefur ekki komin inn síðan. Nei án spaugs þá eru þetta bestu fréttir í langan tíma þessari fólksflutningar atarna.
22. ágúst 2007
Snilldarinnar jeppaferð fór ég í um helgina. Jón Gísli, Einar Logi, Jóni og ég á Nissan hans Jóns Gísla. Upp á Hólafjall, Landakot, Laugafell, Nýjadal, Gæsavötn, Kistufell, Flæður, Askja, Víti, niður Dyngjufjalladal, suðrárbotna, Svartárkot svo eitthvað sé nefnt. Tók myndir á gemsann. Þær eru hér og 47mb GSM vídjó hér
6. ágúst 2007
Við fluttum í Bjarmastíg þann 1. júlí síðastliðinn og ég hef síðan þá hvern einasta dag nokkurnveginn verið að bardúsa við húsið inni og úti. Það fer að verða óhætt að fá gesti ef þið afsakið laxableika litinn á holinu. Endilega komið í heimsókn til okkar fljótlega elskulegir vinir og vandamenn. Ykkar einlægi Kipi.
5. ágúst 2007
Ég er hættur að spila með Hvanndalsbræðrum. Það er ekki fyrir taugaveiklaðan mann eins og mig að spila í svona vinsælli hljómsveit. Ég hafði of lítinn tíma fyrir fjölskylduna og flugmódelin þannig að ég dró mig út úr þessu en ætla samt að spila reglulega fyrir sjálfan mig! Einnig er ég farinn að huga að innflutning á Hammond B3 og Leslie stæðu.
26. maí 2007
Ég er búinn að ráða mig hjá EJS. EJS og Skýrr Akureyri verða sameinuð núna 1. júní. Annars er flatt ekkert að frétta og ég segi eins og aðrir bloggarar, hvar er sumarið? Kötturinn er farinn að hverfa viku og viku í burtu sem er mjög gott. Er að bíða eftir samþykki frá frúnni fyrir að senda hann til föðurhúsa.
9. maí 2007
Ég sagði upp hjá Skýrr síðasta dag apríl mánaðar. Hef unnið þar í 5 ár og kominn tími til að breyta til. Merkilegt að ég hef aðeins unnið á tveimur vinnustöðum síðustu 9 ár en það er ekki algengt hvorki í hönnunarbransanum eða tölvubransanum. Það styttist í að við fáum afhenta íbúðina og tilhlökkunin er mikil.
18. mars 2007
Spilaði fyrir troðfullu húsi 3 tónleika núna um helgina. Það var rífandi stuð og gekk vel. Það er ágætt að vera í stórhljómsveit Hvanndalsbræðra, fólk virðist skemmta sér ákaflega vel. Svo verð ég að segja ykkur Bubba aðdáendum frá því að ég skipti óopnaða Bubba DVD tónleikadisknum út fyrir DVD tónleika með Maríu Carey TAKK.
18. mars 2007
Við Guðfinna fórum í bíó áðan, á myndina "300". Ég nenni ekki að lýsa henni með öðrum orðum en þetta er leiðinlegasta mynd sem ég hef séð síðan ég sá Dumb and dumberer 2 eða hvað sem hún hét. Mig langar svo í nýtt Hammond B-3 og Leslie. Reyndar hugsa ég að ég kaupi mér píanó næst í stofuna á Bjarmastíg. Veit einhver um píanó til sölu?
11. mars 2007
Kominn heim eftir suðurferð. Spilaði á Rás2 í beinni á föstudag og svo á tónleikum um kvöldið. Spilaði hljómborð í lagi í stúdíói á laugardeginum. Ég stóð vel við mitt og skilaði því vel en taugarnar voru dáltið þandar undir það síðasta. Hér er upptaka af viðtalinu og spilinu í beinni á Rás 2: Smella hér til að hlusta
16. febrúar 2007
Við vorum að kaupa íbúð. Efrihæð í tvíbýli. Afhendingardagur er 1. júlí og þangað til þurfum við að borga af lánunum og leiguna hér í Eyrarlandsveginum. Dæmið er soltið strembið :-) Bytheway, við erum með til sölu 2 gjafabréf hjá Icelandair að virði 62.000! Fást á 50þús eða besta boð. Gilda í 3 ár!.
10. febrúar 2007
Nú er ég kominn í nám um helgar þar sem ég bý mig undir að fá MCSA gráðuna frá Microsoft. Það er meira en að segja það. En hvað um það. Við Guðfinna buðum í íbúð í gær. Spurning hvað gerist í þeim málum á næstu dögum, vikum og mánuðum. Hér má lesa alhæfingar frá manni sem er greinilega ekki hrifinn af flugvélum: Smella hér
22. janúar 2007
Við rústuðum Frökkum í handbolta áðan og þvílíkt sem strákarnir gáfu sig í þetta. VIð unnum þetta ekki á tækni heldur vilja og kappsemi. Frakkarnir voru bara ekkert að fatta hvað var í gangi. En að örðu, það er erfittr að lenda farþegaþotu á Akureyrarflugvelli. Hér er vídjó úr cockpit af lendingu þotu á vellinum: http://www.youtube.com/watch?v=rfaoCVjKD2k
19. janúar 2007
Hér er afar fróðleg heimildarmynd um áhrif fíkniefna á kóngulær (köngul-lær) (köngull + ló). http://www.influks.com/post655.html Þannig er nú það og komin helgi. Tilvalið að slaka á og hugsa smá um byrjun tímans: http://www.hawking.org.uk/lectures/bot.html Frekar en að eyða æfinni í að horfa á mjögsvo heiladeyfandi Skjá einn eða Sirkus. Góða helgi!
17. janúar 2007
Í guðanna bænum hættið að vera bitur og upplifið frekar lífsgleðina og hamingjuna í tildæmis þessu!: Smella hér. Já hérna hér. Þvílík orka gleðinnar og hamingjunar brýst út eins og sólgos af gleði og fríkaðri ánægju. En nóg um það. Danska er erfitt mál að skilja finnst mér, hér er gott dæmi um það: http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk
16. janúar 2007
Að lesa fyrirlestra eftir Steven Hawkins er mjög fróðlegt. Að gera það ekki er í raun ignorance. Ég hvet alla til að fara á síðuna hans og lesa "The Beginning of Time". Til að gera þetta spennandi fyrir ykkur get ég sagt að vísindin og stærðfræðin hafa sannað að heimurinn og tíminn byrjaði með einum stórum hvelli fyrir tilstuðlan áhrifa frá "öðrum stað".
13. janúar 2007
Ég masteraði aðferðina við að brúna kartöflur í dag og bjó til bestu brúnðu kartöflur í heimi. Takk fyrir það! Pétur er hjá okkur sem er alltaf frábært. Hann er svolítið matvandur en það var ég líka á hans aldri. Úr flugmódelsportinu er lítið að frétta nema ég hef ekkert pláss lengur, flugvélaflotinn er orðinn of stór :-) ps. Ég er laus við spangirnar.
Það þarf að strauja Þristinn líka!

|