Kip.is Kip.is er bara flipp, ég hef frekar
litlu að koma á framfæri nema endrum og sinnum einhverjum fréttum af okkur heimilisfólki í Bjarmastíg...
Hvað
er ég Manneska. Frekar hugsandi ef eitthvað
er, heilinn er alltaf í botni. Er pabbi, unnusti og öryggisstjóri hjá EJS. Í frístundum
spila ég á píanóið mitt og stunda útivist, hanna grafík, flýg flugmódelum, dútla í garðinum og hugsa og hugsa um
lífið og tilveruna. Vinir mínir kalla mig ýmist KIP eða Didda. Guðfinna mín kallar mig Di :)
Fegurð Fegurð lífsins er mikil þegar
maður tekur eftir henni. Hún er hér og þar, en maður
er yfirleitt svo leiðinlega upptekinn af sjálfum
sér að þetta fer oftast framhjá manni.
Fróðleikur:
Er mjólk, eins og hún er unnin í dag, í raun jafnholl og af er látið? Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ er á.
[meira...]
Fagur er fiskurinn...
Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum, bröndóttur á halanum, með rauða kúlu á maganum. Fetta bretta, vanda branda, gættu þinna handa, brátt skal högg á litla lófann detta! (höf. ók.)
Ég hef komist á það lag
og iðkað heima og víðar
að fresta þeirri dáð í dag
sem drýgja mætti síðar. (höf. ók.)
Vaxandi skuldum mig verjar af,
volæði eymd og pína.
Syngjandi glaður kominn á kaf,
fyrir kærleik og tilstilli þína. (kip)
Stafla ég oftan stælgæinn,
í stálið bláa og kalda.
Vanur maður og verklaginn,
víst það máttu halda. (kip)
3. desember 2008 Facebook. Á skömmum tíma fór þorri fólks að eiga samskipti á facebook. Menn senda ekki tölvupóst eða sms lengur, eða þá fara í heímsóknir. Allt fer þetta fram á Facebook. Ef þú lesandi góður veist ekki um hvað er skrifað hér, legg ég til að þú farir á www.facebook.com og skráir þig þar sem notanda.
21. nóvember 2008 Árin líða Hratt. Pétur er orðinn Bárðdælingur, ég á hund, Guðfinna á ekki svo mikið eftir af skólanum. Tröppurnar eru komnar, baðherbergið þokast áfram. Það er komin kreppa á Íslandi. Um hvað ætli ég eigi eftri að skrifa eftir 7 ár? Ætli það verði góðæri þá? Mig langar til að stjórna bænum en finnst ég ekki geta verið í flokk. Pattstaða.
7. október 2008 Heyrið mig! Ég held ég hafi valið rétt að treysta litlum sparisjóði og íbúðalánasjóð fyrir mínum fjármálum. Aumingja fólkið sem hélt það gæti orðið ríkt með því að skiptast á pappírum.. There is no such thing as free money. Vesalings upparnir í Reykjavík þurfa að læra að elda, þeir svo voru búnir að gleyma þeirri tækni... og jafnvel smyrja sér nesti fyrir daginn!
1. september 2008 Framkvæmdir í Bjarmastíg standa yfir. Þetta stefnir í margar millur sýnist mér. Stoðveggur og tröppur, dren ofl. Það verður aldeilis salla fínt þegar þetta verður búið. Reyndar verður fínna næsta sumar þegar ég verð búinn að laga lóðina. Skoðið myndirnar hennar Guðfinnu, www.gudfinna.net og myndasíðan www.flickr.com/photos/gudfinna
20. ágúst 2008 Ferðaklúbburinn Flapuff samastendur af mér og 5 öðrum félögum.Við fórum um daginn og gistum í Landakoti, þaðan yfir Vonarskarð og gist í Hrauneyjum. Þaðan upp í 4x4 skálann Setrið og gist þar. Þaðan í Kerlingafjöll og heim. Eknir voru 837km. Meðal hraði var 23,2km/h. Moving time var 25klst. Stoppitími án þess að slökkva á gps var 11klst.
5. ágúst 2008 Við Pétur og Guðfinna áttum góða daga í Hveragerði í júlí og svo fórum við Pétur vestur á firði. Heilmikið brallað hjá Bjarmastígsbúunum. Máni er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn en hann er sonur Blíðu frá Fellshlíð. Ég er austur á fjörðum að leysa af í tölvunum en fer heim á morgun til að starta framkvæmdum í Bjarmastíg. Mála húsið, drena , steypa 20m kannt og tröppur.
14. maí 2008 Vortónleikar kórs Akureyrarkirkju verða haldnir í Akureyrarkirkju næstkomandi sunnudag kl. 17:00. Allir að mæta! Ps. Nú þegar sumarið er komið og geitungarnir koma inn um glugga langar mig að benda ykkur á það besta sem ég hef prófað á geitunga, það er Astonish Bathroom cleaner.. Þeir þagna samstundis og spreyjað er á þá... Betra en flugnaeitur..
6. april 2008 Óskalagatónleikar Eyþórs Inga voru í dag í Akureyrarkirkju. Meðal annars á efnisskránni var lag sem ég samdi árið 2002, "Sumarnótt á Akureyri". Þetta var frumflutningur og sá flottasti sem hægt er að fá, frá sjálfum Eyþóri Inga, organista í Akureyrarkirkju.
19. janúar 2008 Pétur Ívar fékk silfur á jólamóti KA í Júdó sem fram fór á dögunum. Aldeilis góður árangur það. Við frúin vorum að koma af afmælistónleikum karlakórsins Heimirs og Stefán Íslandi. Mikið voru þetta stórkostlegir tónleikar. Kórinn varð áttræður á síðasta ári og Stefán Íslandi hefði orðið tíræður. Þessir tónleikar verða lengi í minnum hafðir hjá heimilisfólki hér.
6. janúar 2008 Gleðilegt nýtt ár. Þetta voru ágæt jól. Rúmlega 2 metra fura í stofunni, góður matur og gaman var að syngja aftansöng í Akureyrarkirkju. Þó vantaði Pétur Ívar á aðfangadagskvöld en hann verður hjá okkur næst. Á morgun er þrettándinn og felli ég þá fánastöngina til að ná aftur niður seríunni. Þessi bláa spíra sést vel, sá hana úr fokkernum yfir Akureyri í fyrradag.
23. desember 2007 Kórinn söng jólasöngvana sunnudaginn 16 desember sl. Það var mikið ævintýri fyrir mig. Flutt var meðal annars í heild sinni Messe de minuit eftir Marc-Antoine Charpentier en sú messa er flutt á latínu. Í dag og gær sungum við á ýmsum stöðum um bæjinn en söngurinn upp á Hlíð í gær fannst mér eftirminnilegastur. Værðin í loftinu þar var sérstök og góð.
9. desember 2007 Ég var að versla píanó og kemur það á morgun. Það verður híft upp með kranabíl austan megin við hús, yfir húsið og slakað niður á svalirnar vestan við. Ég vona að það slitni ekki niður yfir húsinu því 400kg píanó myndi fara í gegnum þakið. Annars er ég búinn að henda út fullt af gereftum til að geta málað fyrir jólin því nýjar hurðir koma eftir áramót.
9. desember 2007 VIð hjúin fórum í skírn (Snarfríðar Lukku) Rakelar í Akureyrarkirkju í gær. Þar á eftir fórum við á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þar sem söngfélagið Sálubót og Garðar Thor Cortes sungu með. Ég var ekki hrifinn af Cortes en Sálubót er mikið snilldar söngfélag sem syngir stórkostlega vel. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri.
29. nóvember 2007 Nú er nóg að gera í kórstarfinu. Nóg um það. Nú er nóg að gera í að safna búnaði í nýja 2x2 Katana listflugvélina mína. Mótorinn er á leiðinni frá þýskalandi ásamt 3ja blaða Carbon Fiber propp og fleira. Gaman að því. Nú vil ég hvetja alla til að skoða myndasíðuna hennar Guðfinnu www.flickr.com/photos/gudfinna en Guðfinna er dugleg að bæta inn myndum.
1. nóvember 2007 Að tjá sig í skrifum og söng, máli og myndum er allt komið frá rótum þess eðlis okkar að skapa í kringum okkur, það er, að miðla lífinu. Ég vil hvetja fólk til að ganga annars lagið út í dyr og syngja eitthvað út í buskann, það er hressandi. Það þarf ekki að taka langa stund enda nágrannarnir líklegir til að hringja í lögregluna ef þetta er gert lengi í einu.
14. október 2007 Ég er kominn í kór Akureyrarkirkju og kvet alla til að mæta nú sem fyrr í messur. Kórinn er fullur af Þingeyingum sem er náttúrulega afar jákvætt. Annars er lítið að frétta nema ég verð í Búddapest um næstu helgi á Árshátíð EJS. Vonandi kemst maður klkklaust frá því. Ég minni alla á að láta mig vita ef fréttist af píanói til sölu.
4. september 2007 Við fórum suður um helgina akandi og brá ég á það ráð að taka með stórt flugmódel svo Guðfinna gæti ekki verslað í Reykjavík stóra IKEA hluti :) Neinei, ég fór suður með nesjum og var þátttakandi í merkisviðburði hjá Flugmódelfélagi Suðurnesja. Þar Flaug ég og grillaði meira að segja pylsur um stund. Sjá myndir hér
3. september 2007 Meðalgreind Akureyringa hækkaði þónokkuð um daginn. Trausti Dagsson og frú fluttu í bæinn alla leið frá Danmörku. Trausti "keik" í heimsókn og þá sló greindarvísitölumælir hússins út og hefur ekki komin inn síðan. Nei án spaugs þá eru þetta bestu fréttir í langan tíma þessari fólksflutningar atarna.
22. ágúst 2007 Snilldarinnar jeppaferð fór ég í um helgina. Jón Gísli, Einar Logi, Jóni og ég á Nissan hans Jóns Gísla. Upp á Hólafjall, Landakot, Laugafell, Nýjadal, Gæsavötn, Kistufell, Flæður, Askja, Víti, niður Dyngjufjalladal, suðrárbotna, Svartárkot svo eitthvað sé nefnt. Tók myndir á gemsann. Þær eru hér og 47mb GSM vídjó hér
6. ágúst 2007 Við fluttum í Bjarmastíg þann 1. júlí síðastliðinn og ég hef síðan þá flesta daga verið að bardúsa við húsið inni og úti. Það fer að verða óhætt að fá vini og vandamenn í heimsókn ef þið afsakið laxableika litinn á holinu. Endilega komið í heimsókn til okkar fljótlega elskulegir vinir og vandamenn. Ykkar einlægi Kipi.
5. ágúst 2007 Ég er hættur að spila með Hvanndalsbræðrum. Það er ekki fyrir taugaveiklaðan mann eins og mig að spila í svona vinsælli hljómsveit. Ég hafði of lítinn tíma fyrir fjölskylduna og flugmódelin þannig að ég dró mig út úr þessu en ætla samt að spila reglulega fyrir sjálfan mig! Einnig er ég farinn að huga að innflutning á Hammond B3 og Leslie stæðu.
26. maí 2007 Ég er búinn að ráða mig hjá EJS. EJS og Skýrr Akureyri verða sameinuð núna 1. júní. Annars er flatt ekkert að frétta og ég segi eins og aðrir bloggarar, hvar er sumarið? Kötturinn er farinn að hverfa viku og viku í burtu sem er mjög gott. Er að bíða eftir samþykki frá frúnni fyrir að senda hann til föðurhúsa.
9. maí 2007 Ég sagði upp hjá Skýrr síðasta dag apríl mánaðar. Hef unnið þar í 5 ár og kominn tími til að breyta til. Merkilegt að ég hef aðeins unnið á tveimur vinnustöðum síðustu 9 ár en það er ekki algengt hvorki í hönnunarbransanum eða tölvubransanum. Það styttist í að við fáum afhenta íbúðina og tilhlökkunin er mikil.
18. mars 2007 Spilaði fyrir troðfullu húsi 3 tónleika núna um helgina. Það var rífandi stuð og gekk vel. Það er ágætt að vera í stórhljómsveit Hvanndalsbræðra, fólk virðist skemmta sér ákaflega vel. Svo verð ég að segja ykkur Bubba aðdáendum frá því að ég skipti óopnaða Bubba DVD tónleikadisknum út fyrir DVD tónleika með Maríu Carey TAKK.
18. mars 2007 Við Guðfinna fórum í bíó áðan, á myndina "300". Ég nenni ekki að lýsa henni með öðrum orðum en þetta er leiðinlegasta mynd sem ég hef séð síðan ég sá Dumb and dumberer 2 eða hvað sem hún hét. Mig langar svo í nýtt Hammond B-3 og Leslie. Reyndar hugsa ég að ég kaupi mér píanó næst í stofuna á Bjarmastíg. Veit einhver um píanó til sölu?
11. mars 2007 Kominn heim eftir suðurferð. Spilaði á Rás2 í beinni á föstudag og svo á tónleikum um kvöldið. Spilaði hljómborð í lagi í stúdíói á laugardeginum. Ég stóð vel við mitt og skilaði því vel en taugarnar voru dáltið þandar undir það síðasta. Hér er upptaka af viðtalinu og spilinu í beinni á Rás 2: Smella hér til að hlusta
16. febrúar 2007 Við vorum að kaupa íbúð. Efrihæð í tvíbýli. Afhendingardagur er 1. júlí og þangað til þurfum við að borga af lánunum og leiguna hér í Eyrarlandsveginum. Dæmið er soltið strembið :-) Bytheway, við erum með til sölu 2 gjafabréf hjá Icelandair að virði 62.000! Fást á 50þús eða besta boð. Gilda í 3 ár!.
10. febrúar 2007 Nú er ég kominn í nám um helgar þar sem ég bý mig undir að fá MCSA gráðuna frá Microsoft. Það er meira en að segja það. En hvað um það. Við Guðfinna buðum í íbúð í gær. Spurning hvað gerist í þeim málum á næstu dögum, vikum og mánuðum. Hér má lesa alhæfingar frá manni sem er greinilega ekki hrifinn af flugvélum: Smella hér
22. janúar 2007 Við rústuðum Frökkum í handbolta áðan og þvílíkt sem strákarnir gáfu sig í þetta. VIð unnum þetta ekki á tækni heldur vilja og kappsemi. Frakkarnir voru bara ekkert að fatta hvað var í gangi. En að örðu, það er erfittr að lenda farþegaþotu á Akureyrarflugvelli. Hér er vídjó úr cockpit af lendingu þotu á vellinum: http://www.youtube.com/watch?v=rfaoCVjKD2k
19. janúar 2007 Hér er afar fróðleg heimildarmynd um áhrif fíkniefna á kóngulær (köngul-lær) (köngull + ló). http://www.influks.com/post655.html Þannig er nú það og komin helgi. Tilvalið að slaka á og hugsa smá um byrjun tímans: http://www.hawking.org.uk/lectures/bot.html Frekar en að eyða æfinni í að horfa á mjögsvo heiladeyfandi Skjá einn eða Sirkus. Góða helgi!
17. janúar 2007 Í guðanna bænum hættið að vera bitur og upplifið frekar lífsgleðina og hamingjuna í tildæmis þessu!: Smella hér. Já hérna hér. Þvílík orka gleðinnar og hamingjunar brýst út eins og sólgos af gleði og fríkaðri ánægju. En nóg um það. Danska er erfitt mál að skilja finnst mér, hér er gott dæmi um það: http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk
16. janúar 2007 Að lesa fyrirlestra eftir Steven Hawkins er mjög fróðlegt. Að gera það ekki er í raun ignorance. Ég hvet alla til að fara á síðuna hans og lesa "The Beginning of Time". Til að gera þetta spennandi fyrir ykkur get ég sagt að vísindin og stærðfræðin hafa sannað að heimurinn og tíminn byrjaði með einum stórum hvelli fyrir tilstuðlan áhrifa frá "öðrum stað".
13. janúar 2007 Ég masteraði aðferðina við að brúna kartöflur í dag og bjó til bestu brúnðu kartöflur í heimi. Takk fyrir það! Pétur er hjá okkur sem er alltaf frábært. Hann er svolítið matvandur en það var ég líka á hans aldri. Úr flugmódelsportinu er lítið að frétta nema ég hef ekkert pláss lengur, flugvélaflotinn er orðinn of stór :-)
Það þarf að strauja Þristinn líka! (vængur af DC-3)
Frændur Hólmgeir frá Völlum og Þorsteinn frá Fellshlíð á góðri stundu: