Kip.is Kip.is er bara flipp, ég hef frekar
litlu að koma á framfæri nema endrum og sinnum einhverjum fréttum af okkur heimilisfólki í Bjarmastíg...
Hvað
er ég Manneska. Hugsa mjög mikið. Er faðir, unnusti og sérfræðingur hjá EJS. Í frístundum
syng ég í Kór Akureyrarkirkju, spila ég á píanóið mitt og stunda útivist, hanna grafík, flýg flugmódelum, dútla í garðinum og hugsa og hugsa um
lífið og tilveruna. Vinir mínir kalla mig ýmist KIP eða Didda. Guðfinna mín kallar mig Di :)
Fegurð Fegurð lífsins er mikil þegar
maður tekur eftir henni. Hún er hér og þar, en maður
er yfirleitt svo leiðinlega upptekinn af sjálfum
sér að þetta fer oftast framhjá manni.
Fróðleikur:
Er mjólk, eins og hún er unnin í dag, í raun jafnholl og af er látið? Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ er á.
[meira...]
Fagur er fiskurinn...
Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum, bröndóttur á halanum, með rauða kúlu á maganum. Fetta bretta, vanda branda, gættu þinna handa, brátt skal högg á litla lófann detta! (höf. ók.)
Ég hef komist á það lag
og iðkað heima og víðar
að fresta þeirri dáð í dag
sem drýgja mætti síðar. (höf. ók.)
Vaxandi skuldum mig verjar af,
volæði eymd og pína.
Syngjandi glaður kominn á kaf,
fyrir kærleik og tilstilli þína. (kip)
Stafla ég oftan stælgæinn,
í stálið bláa og kalda.
Vanur maður og verklaginn,
víst það máttu halda. (kip)
Veröldinni er þannig háttað að það sem næstum því allir nota er best, annars væru næstum allir að nota eitthvað annað
14. desember 2009 Ég söng með kórnum mínum á tveimur tónleikum á síðastliðinn sunnudag. Það voru hinir svokölluðu jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju. Það var eins og oftast, full kirkjan og mikil skemmtun að syngja fyrir svona marga góða og glaða Akureyringa. Það styttist í jólin sem er bagalegt því ég hef ekki enn skapað pláss fyrir aukakílóin komandi.
7. desember 2009 Nú er bláa serían komin í fánastöngina og bláleitur bjarminn í Bjarmastíg birtir upp hverfið og lyftir brá hjá blessuðum nágrönnunum. Lagið Silver Bells í flutningi Dean Martin kemur mér í jólaskap er ég maula stanslaust piparkökur allan desembermánuð. Það er ekki af ástæðulausu að ég er kallaður herra "Þ" með piparkökubumbuna svona út í loftið.
26. ágúst 2009 Ég og tengdó máluðum húsið í sumarfríinu, nú er það alhvítt og fínt. Ýmislegt búið að framkvæma á síðustu 2 árum í Bjarmastíg 3. Steyptum 30 metra langan vegg og tröppur, drenuðum, máluðum, skiptum um hurðir inni, og endurnýjuðum baðherbergið algerlega. Núna er bara best að setjast niður við tölvuna og vinna fyrir skuldunum.
29. apríl 2009 Hátíðartónleikar í Akureyrarkirkju sunnudaginn 10. maí kl. 16:00. Kór Akureyrarkirkju ásamt kammersveit flytja verk eftir G.F. Händel og Felix Mendelssohn. Einsöngv.: Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, Bragi Bergþórsson og Benedikt Ingólfsson bassi. Stj.: Eyþór Ingi Jónsson. Aðgangseyrir kr. 1.500,- fyrir b. 12-18 ára og ellilífeyrisþ. Kr. 2.000 fyrir okkur hin.
21.febrúar 2009 Ég segi stundum við vini mína þegar rökræður byrja um Mac, Linux og Windows að veröldinni sé þannig háttað að það sem næstum því allir nota er best, annars væru næstum allir að nota eitthvað annað. Notið ykkur þetta heilræði þegar kaupa á tölvu eða tölvubúnað .