Í desember minnitist ég á box á Íslandi. Rannsóknir sem hafa veirð birtar að hálfu lækniembætta sýna fram á ótvíræða skaðsemi ástundunar ólympískra hnefaleika. Box á íslandi eru ólympískir hnefaleikar. Munurinn á því boxi sem fólk verður vitni af þegar það sér Tyson og aðra kappa og því boxi sem er leyft á íslandi er nokkur. Hér ber fólki að nota mýkri hanska og grímur til að verja sig. En rannsóknirnar sýna ótvírætt fram á það að þrátt fyrir þessar verjur er staðfest að æfingar á ólympískum hnefaleikum stórskemmi heilann. Það ætti ekki að þurfa að sýna fólki fram á rannsóknarniðurstöður til þess að fá það til að skilja það að ástundun þess að fá högg í hausinn sé sé heilaskemmandi.

Notið heilann - sleppið boxinu!

 

kip.is |