Þegar kviknar á deginum og í lífinu
ljós, þegar myrkrið hörfar frá mér,
þá er eitthvað sem hrífur mig líkt
og útsprungin rós, þá vil ég
vera hjá þér.
Þegar geng ég í sólinni, mitt um hábjartan
dag, litafegurð blasir við mér.
Þegar heimurinn heillar mig líkt og töfrandi
lag, þá vil ég vera hjá þér.
Ég vil bæði lifa og vona, ég vil brenna
upp af ást, ég vil lifa með þér
svona, ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi, líka þegar
illa fe, meðan lífið heldur áfram, þá
vil ég vera hjá þér.
Meðan skuggarnir stækka og ýta húminu
að, gamall máninn bærir á sér.
Vil ég eiga andartak inni á rólegum stað,
þá vil ég vera hjá þér.
Ég vil bæði lifa og ...
Meðan leikur allt í ...
Meðan leikur allt í ...
Þegar slokknar á deginum yfirþyrmandi nótt,
stormar fyrir stjarnanna her.
En þá bítur mig ekkert á og ég
sef vært og rótt, ef þú vilt vera hjá
mér, þá vil ég vera hjá þér.


"Norska
Eurovosionlagið"
"Life in Mono"
- Mono
"The second
you sleep" - Saybia
|