Lundúnaferðin.
Árshátíð Skýrr árið 2006 fór fram laugardagskvöldið 18. mars á Riverbank Park Plaza hótelinu við Thames ána í London. Við Guðfinna lögðum upp eftir vinnu á föstudaginn og ókum til Reykjavíkur þar sem við gistum í Rauðalæk hjá foreldrum hennar. 04:30 var svo lagt af stað út á Keflavíkurflugvöll af því að ég hélt að mæting væri 05:30 og flug 07:30 en ég var klukkutíma of snemma í öllu saman. Hefði þegið þennan klukkutíma svefn sem ég missti af þarna. Flugið var tíðindalaust, alltaf jafn gaman samt að lenda í ókyrrð og sjá vængina blakta, það er áhugavert og drepur tímann sem annars er lengi að líða finnst mér í þotu.
Þegar lent var í London og komið á hótelið um miðjan dag leið ekki langur tími þar til að ég var kominn með Strawberry Martini í hönd á barnum. Við vorum frekar dösuð þegar þarna var komið að sögu og ákváðum við að slaka á á hótelinu það sem eftir var dagsins fram að árshátíð. Árshátíðin var á -4 hæð (takið eftir MÍNUS fjórðu hæð) niður í jörðinni. Þetta var falleg samkoma með GALA þema en fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir þá klæðist fólk síðkjólum og smoking fötum á GALA samkomum. Eftir borðhald spilaði Reykvískur plötusnúður og fór það vel. Töluverð ölvun var þarna á undirrituðum og varð úr hin besta skemmtun. Daginn eftir fórum við á fætur eftir hádegi og ákváðum að fara í dýragarð Lundúna, London Zoo. Við spurðum Lobbíarann eftir heppilegustu leiðina í dýragarðinn og spáði hann að leigubíll myndi kosta 25pund. Guðfinna var einmitt með 25 pund í veskinu og spurðum við fyrsta leigubílstjórann fyrir framan hótelið hvort hann myndi skutla okkur þangað fyrir 25 pund sem og hann gerði. Leigubíllinn til baka var tekinn á mæli og var það aðeins 11 pund þannig að við vorum féflett af eigin hendi :-) Í dýragarðinum var margt að sjá eins og má búast við og var það sérstaklega tígrísdýrin sem stóðu uppúr en ég hef miklar mætur á tígrisdýrum, þau eru afskaplega tignaleg, og þykja mér ljón blikna í samanburði. Jú það voru þarna ljón og gaman að standa algerlega upp við eitt þeirra með aðeins þunna glerrúðu á milli en það kom gangandi upp að rúðunni og strauk sér upp að mér (eða rúðunni). Það var reyndar gaman að heyra karlljónið "mjálma", þvílíkar drunur!. Gíraffar, lamadýr, kameldýr og nokkurn vegin allt sem var til sýnis í dýragarðinum sá ég þarna í fyrsta skipti. Það var sérstakt að vera með svörtu ekkjuna nokkra cm fyrir framan nefið á sér í sýningarbúri.
Eftir þessa ágætu ferð í dýragarðinn fórum við með Ingvari Erni og frú á ítalskan veitingastað og eftir forrétt aðalrétt, einhvern rétt, eftirrétt, rauðvínsflösku, kaffi, koníak og margar sígarettur þá stóð maður á blístri í orðsins fyllstu merkingu, enda var maturinn alveg sérstaklega sérdeilis prýðilega framúrskarandi frábær. Ég hoppa alveg yfir því. Reikningurinn var náttúrulega svolítið hár en hversu oft er maður á ístölskum veitingastað í London.
Þegar þarna var komið við sögu á þessu sunnudagskvöldi þá héldum við á hótelbarinn og slökuðum á því morguninn eftir ætluðum við að fara á verslunargötuna Oxford street. Já allspræk vorum við að morgni mánudags og skálmuðum við í neðanjarðarlestarstöð og keyptum okkur sitt hvorn dagpassann. Þetta lestarkerfi er frábært hvað varðar einfaldleika. Það er talsverður hávaði í lestunum og hristingur enda ekki hannað með þægindi í huga. Oxford street er orkusjúgandi gata en ákaflega spennandi og óspennandi um leið. Á kaffihúsinu Nero sá ég ósmekklegasta klósett sem ég hef séð, ég get velsæmis vegna ekki lýst því hér. Já búðirnar voru margar og mannmergðin en í raun minnti þetta bara á Laugaveginn, svipaðar búðir og mannlíf. Reyndar kom mér á óvart í allri Lundúnadvölinni að þarna í miðborginni voru hvítir Bretar í miklum minnihluta og ef að maður heyrði ensku talaða þá var það ekki með enskum hreim, oftast kalkútta hreim. En þetta er líklega vegna þess að fólkið sem maður umgengst var flest í þjónustustörfum og þar hafa innflytjendur hreiðrað um sig. Samt voru gangandi vegfarendur á Oxford Street í minnihluta hvítir bretar. Við Guðfinna keyptum okkur bæði leðurjakka og eitthvað fleira.
Um kaffileitið var kominn tími á að hraða sér á hótelið og fara í flugrútuna á flugvöllinn og standa þar í klukkutíma biðröð við innritunina. Eilífar biðir og seinkun en við lendum rétt fyrir eitt um nóttina og ókum beint heim til Akureyrar, fórum að sofa á þriðjudagsmorgunn og ég vaknaði á hádegi og fór í vinnuna.
Tígrísdýr og stórfenglegar byggingar er það sem stendur upp úr í huga mínum frá þessari ferð.
- Hér eru myndir frá ferðinni
Ég biðst velvirðingar á ásláttar-, staðreynda- og stafsetningarvillum :-)
Hér er gagnlegur fróðleikur í wordskjölum fyrir fólk sem er á leiðinni til London:
Búðarráð í London
Leikhús í London
Markaðir í London
Skoðunarferðir í London
Söfn í London
Veitingahús í London
Ég ætla ekki að eigna mér heiðurinn af þessu, þetta er allt saman stolið...
|