12. maí 2007
Um þessar mundir er ég að setja saman Giant Big Stick á Grísará. Þetta er ARF módel, það stæsta hjá mér hingað til. Þetta er einnig fyrsta módelið mitt með bensínmótor í stað glóðmótors (tréspíra). Það er 23cc bensínmotor sem mun drífa hana áfram.
9. apríl 2007
Lítið að frétta hér nema hvað ég flagu Mustang föstudaginn langa og þá rifnaði eldsneytistankurinn og skrikkurinn fylltist af módelfuel. Þann daginn fóru einnig 3 vélar í jörðina, Cap hans Gauja fór í mask, Ljúflingur Gumma fór í tvennt og hjólastellið undan vél hjá Kjartani.
20.mars 2007
Laugardaginn var héldum við teddi inn á Mela með Aero40 trainerinn hans Tedda og Christen Eagle tvíþekjuna mína. Teddi hafði ekki flogið í 6 ár og hjálpaði gaui honum að rifja upp helstu atriðin. Gaui hjálpaði mér með tvíþekjuna og gerði mér kleift að fljúga þessu skrímsli. Það tókst en ég held ég geymi hana aðeins og flúgi Mustangnum meira á næstunni.
24. janúar 2007
Þessar vikurnar er ég smátt og smátt að byrja á að gera þristinn klárann fyrir næsta sumar. Vænghafið er rúmir 2 metrar og ég er að spreyja hann gráann. Áðan kláraði ég heilannn brúsa á hálftíma og pínulitla íbúðin varð svo megn af lakklykt að mér er orðið óglatt. Maður á ekki að spreyja lakki heima hjá sér í stórum skömmtum með engar persónuhlífar. Sjá hér!
13. janúar 2007
Á gamalársdag flugum við á Melunum og það var snilld. Frábært veður. Mustanginn flaug og flaug og lenti og lenti og lenti svo eldsneytislaus á spotta sem sleit undan hjólaútbúnaðinn og skemmdi vænginn. Viðgerðir standa yfir á Grísará en þar mætum við módelmenn á fimmtudagskvöldum og smíðum og spjöllum.
11. Desember. Mánudagur
Á sunnudaginn fyrir viku flaug ég Mustangnum jómfrúarflugið. Það tókst vonum framar og hann flaug eins og engill. Þurfti einungis að trimma hallastýrið 3svar til hægri. Þegar kom að 3ja fluginu þá dó á mótor í flugtaki en það slapp til. Það virðist komast loft að einhversstaðar og er það í athugun. Frábært veður var og mættu Gaui, Kjartan og Þröstur á staðinn. Smellið hér itl að sjá vídjó af jómfrúarfluginu. (Best að hægrismella og velja "save target as" afþví vídjóið er 30mb.
28. Nóvember. Þriðjudagur
Ég var að versla mér nýja vél af Þresti í Syðra-Felli. Það er Christen Eagle tvíþekja. Protech kit með SC 91. Ég held að næsta sumar verði tvíþekjusumar á Melgerðismelum. Síðan í sumar hefur tvíþekjum í félaginu fjölgað talsvert og verður gaman að mæta á Melana fallega helgarmorgna í Sumar. Ég vil benda vinum og vandamönnum á að fólk getur mætt á Melgerðismela og fylgst með en ágætt er ef það tilkynnir komu síma á undan með því að hringja í mig í 899-9817 svo ég geti vísað því rétt leið. Það er kemur fyrir að fólk aki beint yfir suður endann á brautinni okkar (grasið) og fari þar með lang út fyrir veginn og við það geta myndast ójöfnur sem slátra flugmódelum.
28. október. Laugardagur
Ég setti nýja rudderinn á Giles í gær ásamt ufsilonsnúru og framlenginu fyrir hallastýrin líka. Vaknaði eldhress í morgun og við Teddi drifum okkur á Melana með Giles. Eftir hafa starta í þónokkra stund fór mótorinn í gang og eftir smá stund var hann farinn að ganga vel. Ég tók tékk á stýrunum og allt virkaði 100%. Ég ók út á braut og í loftið. Um leið og hún fór upp fann ég að hallastýrin voru óvirk... Ekki gat ég slegið af því á hefði ég þurft að lenda henni blindandi í hvarfi og trjám norðan við braut. Ég smellti dualreitinu á og þá komu hallastýrin aftur í gang en hættu aftur eftir 3 sekúntur! Þá stefndi hún í vestur og ég byrjaði að reyna halla henni með ruddernum og það bar lítinn sem engann árangur. Nú voru góð ráð dýr, ef ég hefði slegið af þarna alveg þá hefði máski farið betur en ég ætlaði að geta hallað henni og stýrt með ruddernum, þvílíkt sjálfstraust! Hún var yfir veginum þegar hún fór í mígandi siglingu í jörðina, í staðin fyrir að slá af var hún á svona 60% mótor þar sem ég var að reyna fá vind í rudder til að geta stýrt. Auðvitað þurfti spinnerinn að lenda beint á stein sem var ekki stór samt. Núna er Giles allur og í besta lagi hægt að nota út á súrmjólk. Það er engin eftirsjá í henni nema vinnunni sem Gauji var búinn að leggja í að kenna mér að smíða nýjan rudder og svo mótornum sem brotnaði í tvennt. Fjórgengis OS mótor. En ég veit ekki enn hvað skeði. Allt var til staðar þegar ég ók út á braut og í lagi. Og ef nýja framlengingin eða ufsilon snúran fór úr sambandi afhverju komu stýrin inn í smástund með dualreitinu? Lotnetið var úti minnir mig, allt nýhlaðið nóttina áður. Fleiri myndir hér: http://www.kip.is/modelflug/img/gilescrashonline/
23. október. Mánudagur
Klukkan var 16:30, strákurinn kominn til mömmu sinnar og svona rúmur klukkutími eftir af birtunni. Ég dreif Giles út í bíl og Guðfinna (kærastan) ákvað að koma með. Það var fínt að fá hana með því það er ekkert varið í að vera einn og slasa sig á Melunum. Þegar ég var kominn suður að Hrafnagili fattaði ég að ég var ekki með sexkant til að skrúfa vænginn á Giles. Ég örvænti smá en ákvað að renna til Gauja á Grísará því þar var verkfærataskan mín. Þar kom í ljós að ég á engann sexkant sem passar en Gauji lánaði mér svo ég gæti nú flogið langþráð flug í dag. Þegar á Melana var komið var kalt og sá ég að ég myndi ná svona 2-3 flugum með þá birtu sem var eftir. Út í kuldanum hjálpaði Guðfinna mér að setja saman Giles en þá kom í ljós að sexkanturinn frá Gauja passaði ekki. Nú voru mér allar bjargir bannaðar en í loftið ætlaði ég og anskotaði boltunum í með skrúfjárunum þannig að rétt nóg hersla náðist. Þetta tók tíma og okkur orðið skítkalt þrátt fyrir góðan klæðaburð. Nú var bara að fylla á tankinn og setja í gang. Guðfinna klofaði yfir vélina eins og fagmaður og ég byrjaði að starta. Svo startaði ég og startaði. Ekkert gerðist. Ég hef bara flogið fjórgengismótor 3 flug og ekki kominn með tilfinningu fyrir honum. Ég ætlaði og skildi fljúga í dag og hélt áfram að starta í langan langan tíma þangað til að allt í einu fór eitthvað að gerast. Nú virtist sem draumurinn ætlaði að rætast, já hann var kominn í gang og gekk sífellt betur eftir því sem ég leifði honum að ganga. Nú var svo komið að bes t væri að fara í loftið og bað ég Guðfinnu að stíga frá vélinni. Já... allt þetta stress og vesen var að borga sig, nú skildi ég í loftið! Þar sem ég var búinn að tuða svo mikið í Guðfinnu að fara varlega í umgengni við módel mín ákvað ég að sleppa setningunni "passaðu þig að stíga ekki á stélið þegar þú klofar af því". Jæja. hún steig svona nett á rudderinn að hann kubbaðist í sundur. Allt fyrir gíg. Ég kreysti fram bros og kreysti af afefli upp úr mér "þá er þetta búið, slysin geta alltaf skeð". Í kjölfarið byjaði Guðfinna að bjóða sérhverjum blíðu sína er laga skildi fyrir mig módelið og fyrir valinu varð félagi Gaui. Og það var ekkert verið að tvínóna við hlutina því í kvöld var búið að líma nýjann rudder og annaðkvöld verður hann pússaður!
5. október. Mánudagur
Fór í sveitina með Pétri eftri vinnu á föstudaginn. Tók trainerinn með en gleymdi sendinum. Skrapp til Akureyrar á laugardagsmorguninn með Alla bróður þar sem við náðum í sendinn og skruppum í Syðra-fell að ná í herminn sem ég var að fjárfesta í. Hermirinn er snilld, gaman að leika sér í honum og æfa listflug. Hann er frá Reflex og ég þarf að finna mér fleiri módel í hann. Svo flaug ég 2 flug á trainerinn á laugardag en seinna flugið endaði með óhappi þar sem dó á henni í flugtaki í rokinu og hún rúllaði niður túnið á vængendunum, nýja resín viðgerðin brotnaði á vængnum og ég bara nenni ekki að gera við þennan trainer í bráð.
5. október. Fimmtudagur
Mætti skelþunnur á Melana á sunnudagsmorguninn með Sverri og dreif Giles í loftið sem flaug eins og engill.
Þetta var í fyrsta skipti sem ég flaug einhverju öðru en trainernum og það sem kom mér mest á óvart var hversu stöðug vélin er og hversu ofur létt er að lenda henni, miklu auðveldara en trainernum..
30. september. Laugardagur
Giles og Dc-3 komnar í hús hér hangir Giles í geymslunni minni þar sem ég er að setja batterypack og móttakara í hann. Hér varð ég að koma vængnum af DC-3 fyrir enda er hann 2.08 metrar. Í Giles er OS70 fjórgengismótor og í Þristinum eru tveir OS40 fjórgengismótorar. Giles verður flogið í fyrramálið og Þristurinn fer núna í andlitslyftingu í vetur þar sem hann verður settur í sömu mynd og Páll Sveinsson þegar hann var í áburðarfluginu.
23. september. Miðvikudagur
Við Pétur fórum módellausir inn á Mela í morgun en þar komu saman Gummi, Kjartan, Þorsteinn, Gaui, Knútur, Árni, ég og Pétur. Gummi mætti með rafmagnsvél sem kom á óvart. Gaui ætlaði að taka testflug á nýrri CAP 10 en hún fór ekki í gang. Ég keypti áðan 2 notuð flugmódel. Douglas DC-3 og Giles.

16.september. Laugardagur
Mætti 09:30 inn á Mela og mættur var þar Þröstur. Síðar komu Þorsteinn, Gaui, Árni og Kjartan. Gott gengi. Ég flaug líklega 6 flug og gerði nýjar hundakúnstir. Það var æðislegt veður, logn, heiðskýrt næstum og mjög hlýtt. Klukkan 12:30 kom svo hafgolan, hvöss og ísköld. Það kom svo á daginn að í síðasta fluginu mínu ákvað ég að fljúga þangað til ég yrði bensínlaus, ekkert mál svosem, nema það að í lendingunni stallaði ég svona svakalega að ég stórskemmdi vélina. Stallið varð einhvernvegin þannig að annar vængurinn hentist niður í svona 1,5 metershæð og í brautina. Hún endaði svo á hjólunum en braut "stýrishúsið" fyrir framan vænginn það svakalega að ég þarf að smíða helling í þetta. Þetta er nefnilega vondur staður til að brjóta, þarna er pinninn festur í þar sem teygjurnar eru settar á. Nú þarf ég að fara gefa í í samsetningunni á Mustang.
6.september. Miðvikudagur
Fór inn á mela eftri vinnu og flaug 4 flug, knife edge er mögulegt á trainernum. Var við opnun módelflugvallarins hjá Seltjörn um helgina. Það var stór samkoma enda völlurinn stór. Soltið hvasst var á vellinum en sumir létu það ekki á sig fá og Hjörtur fór á kostum eins og alltaf.
24.ágúst. Fimmtudagur
Flaug í gærkveldi frá rúmlega 18:00 til 20:30. Árni Hrólfur og Gaui voru á Melum líka með trainerinn hans Árna og Árni hafði mig auðveldlegaí í dogfight. Áðan var ég inn á Grísará ásamt húsráðanda Gauja, Kjartani, Gumma og Þorsteini og við límdum saman vænginn á Mustang.
14.ágúst. Miðvikudagur
Flaug 3 flug á flugkomunni á Melgerðismelum. Þar voru líklega 60 módel saman komin en ekki veit ég hve margir flugmenn.
Góður dagur. Í fyrsta fluginu losnaði hæðarstýrið af að hluta en lending tókst slysalaust. Myndir hér: http://flugmodel.is/fmfamyndir/thumbnails.php?album=14
9.ágúst. Miðvikudagur
Var að ná í Mustanginn á pósthúsið. Allt óbrotið of fínt. Lýst ágætlega á þetta ARF kit. Cowlingin hefur breytt örlítið um lögun vegna þess hvernig henni var pakkað inn, það eru fellingar á klæðningunni en þetta er samt í góðu lagi sýnist mér. Mótarar, servó, móttakari ofl. er á leiðinni frá útlöndunum.
Fór fram á mela í kvöld og flaug 2 flug. Gauji lagaði trainerinn fyrir mig má segja, ég gerði eiginlega ekkert. Hann töfraði eitthvað þannig að mótorinn virðist ganga fallegar, held að þessi bætta festing á blöndugsstýringunni hafi gert gæfumuninn. Ég prófaði svifflugmódel í kvöld hjá Gauja. Bara snilld! mjög peacefull og smooth að fljúga svifflugmódeli.
4.ágúst. Föstudagur
Fór inn á mela til að sjá jómfrúarflug FW190 hjá Gauja.Þar voru Árni Hrólfur, Gummi og Gauji. Þetta er hriiikalega falleg vél. Svo fór ég í skúrinn hans Gauja þar sem hann hjálpaði mér að líma trainerinn.
2.ágúst. Miðvikudagur
Mæjan er öll og ekki fékk ég tækifæri til að komast nær henni en ca 400km. Landflutningar/Samskip rústuðu henni á leiðinni frá Selfoss til Reykjavíkur eða í vöruafgreiðslu í Reykjavík. Hún var ekki lögð af stað norður. Þetta er alveg ákaflega sorglegt.
1.ágúst. Þriðjudagur
Fór á FMFA fund í Vín í Reykárhverfi. Þar mættu 7 manns en margur komst ekki vegna anna. Þar var flugkoman 12. ágúst nk. rædd og skipulögð. Ég keypti 12 servó, 3 mótora og einn hleðsluglóðpung á Ebay í dag. 61 mótor, 53 mótor og 40 mótor. Ef ég er mjög heppinn þá eru þeir máski í lagi og einn af þeim fer í Mustanginn sem er sagður fyrir 40-46 mótor.
30. júlí. Sunnudagur
Fór með Pétri Ívari kl 10:00 inneftir. Þar var Knútur að fljúga Funtana. Sviftivindar og frekar leiðinlegt flugveður. Svo komu Gauji, Gummi og Kjartan. Það var gaman að góðri mætingu. Eitt crash. Gauji var að fljúga ljúflingnum og í einu flugtakinu var henni hent niður af sviftivind og vélin fór í mask, held að Gaui ætli ekki að laga hana. En jæja, við Pétur fórum heim. Svo núna í kvöld var ég alveg friðlaus og fór stanslaust fram á kant hér á Eyrarlandsveginum til að líta til veðurs í suðri en það ringdi hér. Svo ákvað ég að fara inneftir og tók Guðfinnu með.
Það byrjaði að rigna þegar ég kom. Ég beið svolitla stund og flaug svo nokkur flug. Svo kom að því að ég búinn að fljúga flugvélinni á hvolfi að verða heilann tank að ég lenti henni á hvolfi. Mjúk og fín lending en bara eitt út á það að setja, vélin er ekki með lendingabúnað að ofan. Úr varð pínu tjón. Það brotnaði mjög illa mótorfestingin, kertið brotaði og kælidótið á heddinu slípaðist niður og skildi eftiri för á flugbrautinni. Mynd 1 - Mynd 2 - Mynd 3
29. júlí. Laugardagur.
Fór í dag inn á Mela og flaug nokkrum sinnum. Þar voru fyrir Gaui og Gummi að undirbúa flug á Focke Wulf FW 190 A-5 hans Gauja. Engin smá vél þar á ferðinni. Árni Hrólfur kom á staðinn og setti á loft sérstakann loftvarnarflugdreka ásamt syni sínum. Í fyrramálið ætlum við Pétur Ívar að fara inneftir og sjá margt merkilegt. Knútur ætlar að mæta, máski fer RW190 í loftið, máski prófa ég flugmódelið ljúflinginn, máski rústa ég trainernum..? Lífið á Melgerðismelum er einfaldlega spennandi og skemmtilegt. Góða nótt.
27. júlí. Fimmtudagur.
Fór í dag inn á Mela og prófaði breytingarnar á trainernum og viti menn, þetta er miklu skemmtilegra svona. Véli er sumsé ekki með nefhjól lengur. Flaug ansi mörg flug í dag. Lenti út um allt og tók upp hvarvetna. Þetta er snilld.
26. júlí. Miðvikudagur
Fór með Guðfinnu fyrir hádegi í dag inn á Mela og og flaug 2 flug, hætti vegna þess að þessi blessaður nefhjólabúnaður var ekkert að gera sig og braut plaststykkið í nefhjólinu. Frábært veður. Fann batterypackið úr Gilesinum hans Árna Hrólfs við norðurendann. Eftir fund með Árna og Gauja í dag ákvað ég að breyta trainernum í stélhjólsvél með ekkert stélhjól. Í kvöld færði ég hjólin fram þannig að núna eru 2 hjól á vélinni, þá er í laus við nefhjólahorrorinn. Ég býð spenntur eftri Mustanginum og er máski að fara fjárfesta í 3ju vélinni, sem að er Majestic ekki af verri endanum. Það eru einhverjar myndir á mblogginu: http://www.mblog.is/mblog/web?cmd=blogs&mboard=228015
24. júlí. Mánudagur
Ég fór inn á Mela núna seint í kvöld og kom við hjá Þresti og verslaði 20L af Duraglow 10. Þokan var komin neðarlega og ekkert hægt að gera af viti. Flaug samt mikið og um tíma var þetta æfing í blindflugi :-) Svo tók heimskan við. Já heimska því að í eitt skiptið þegar ég var lentur, og vissi að ég þyrfti að tanka, ákvað ég að rífa hana upp og auðvitað var tankurinn tómur. Ég var kominn svona 5 metra upp mjög beint í krappa beygju þegar dó á henni, ég gat rétt hana af og ööörlítið náð nefinu upp áður en hún skall bringuna. Hún er nefnilega nokkuð nefþung með blikkstyrkinguna.
23. júlí. Sunnudagur
Ég var að versla á Ebay.co.uk eina P51-D MUSTANG sem fer í póst frá UK á morgun. Wingspan.....57.6in/1460mm - Wing Area.....580sq in/37.4 dm sq - Fuselage Length.....48.8in/1240mm. Í þetta fer svo 46 mótor, Irvine eða Super TIger. Þetta er ARF þannig að máski verður hún komin á loft í ágúst. Trainerinn verður áfram ávalt til taks enda á ég eftir að þjálfa mig töööluvert áður en ég set Mustanginn í loftið.
18. júlí. Þriðjudagur.
Við Árni Hrólfur mættum á Melgerðismela í góðu veðri milli 09:00-10:00. Ég flaug all mörg flug og Árni flaug Giles300 í fyrsta skipti. Flugum til að verða 14:00. Ekkert óhapp hjá mér. Kl. 21:00 fórum við Guðfinna á Melana og ég flug til 23:40. Gerði marga sokka. (lenda smooth, án þess að skoppa). Skyggnið kl 23:30 var orðið lélegt, Júlí er einungis hálfnaður og og komið nokkurt rökkur um þetta leiti.
9 - 16. júlí
Flaug mánudag, þriðjudag og fimmtudag og sunnudag minnir mig, einn inn á Melgerðismelum. Er farinn að fljúga af fífldirfsku á hvolfi 30 cm fyrir ofan jörð (Fífldirfsku, ekki hæfni) .
Eitt óhapp sem þarfnaðist límingar er annað afturhjólið lagiðst aftur og bramlaði aðeins inni í vél.
1-9. júlí
Er viku heima í sveit og flýg 5 lítra. Eftirfarandi skrifaði ég á spjallinu á spjallvef flugmódelmanna:
J á Sverrir þannig var það að ég dvaldi heima í sveit (Fellshlíð, Reykjadal í Þingeyjarsveit) í viku og flaug á hverjum degi. Sem flugvöll notuðum við kalbletti í túnum, hafraflag og malarveg. Kalblettur stór gafst best en þar gat maður stundum lent sokk. Hafraflagið var heldur mjúkt og nefhjólið fékk að finna fyrir því

Einnig var búið að garða flagið þannig að þegar hún skoppaði í þvera stefnu í flugtaki þá annaðhvort stakst hún í garð og yfir sig eða eins og í einu hrikalega fyndnum flugtaki þá tók hún garðinn með sér og rétt drullaðist á loft með væna tuggu neðan í sér sem hefði gert stálapaðan kálf saddan. Annað flugtakið var þannig að ég hafði óvart rekið mig í dual rate takkann á fajrstýringunni og reif vélina beint upp og svo lóðrétt niður, tók smá hafra með mér og upp aftur. Svona voru þessir dagar góðir. Þegar ég flaug á hús bróður míns (og gaf honum besta hláturkast í marga mánuði) vorum við að notast við veginn heim sem flugbraut en það hentaði vel vegna vindátt. Í einu aðfluginu rak ég hljól í mænirinn en ekkert óhapp varð úr því. Ég var svo í öðru aðflugi og fékk svona mikla sjónskekkju að mér fannst vélin vera langt í burtu en þá, allt í einu, hvarf hún á bak við vestur kvistinn á húsinu og BAMM! Fyrst sá ég stélið leka niður og svo koma vélin. Nú tók við Epoxy gluður mikið og vélin í loftið morguninn eftir. Reyndar skekktist mótorinn það mikið að eftir þetta sést kast á honum og gangurinn er heldur ljótur. Það gerir flugtökin bara ennþá meira spennandi.
Ég var lengi vel á eftir húsfluginu að hugsa hvort ég ætti nokkuð að láta félaga mína í FMFA vita af þessu óhappi þar sem ég er ekki viss um hversu vel það sé liðið að maður sé að fljúga fyrir utan okkar svæði á Melgerðismelum. En þess ber að geta að bræður mínir heima í sveit hvöttu mig óspart áfram og gerðu sé fulla grein fyrir hættunni, og eiginlega vonuðu þeir að eitthvað svona kæmi fyrir. Ég hætti við þetta að nota veginn atarna og hélt áfram að hjakklast í hafraflagi sem skekkti og skemmdi nefhjólasystemið í hverri einustu lendingu. Það voru ekki sokkalendingar heldur drullusokkalendingar. En eftir að hafa styrkt skrokinn með blikki þá er hún farin að þola allan fja... Gott var að vera með góða bræður sína í hlutverki flugumferðarstjóra, pitstoppara og áfyllingarmeistara. Frábært einnig þegar eitt hjólið datt af í flugtaki í nokkrum metrum að þá fannst það aftur en lendingin var svakaleg.
Hér er mbloggið mitt og hér er húsið og kvisturinn
Svo þegar maður var að bíða óþreygufullar mínútur eða klukkutíma eftir að límið þornaði þá var ekkert annað í stöðunni en að klambra saman vindrellum
í stórum stíl. Þessi vindrella er afar tölvuvædd eins og smá má :-) :-)
Annars fer hávaðinn í þeim svo í taugarnar á ábúendum að sjaldan líður langur tími þangað til þær eru skotnar niður með haglabyssu.
Maí - júní 2006
Ég set mig í samband við flugmódelmeistara Guðjón á Grísará og fæ hjá honum lykilupplýsingar um flugmódelsportið. Mæti á aðalfund FMFA og skrá mig í félagið og greiði ársgjaldið. Versla mér Trainer á flugmodel.com og set hann saman heima í sveit með aðstoð bræðra minna. Fer með vélina tilbúnaheim til Akureyrar og svo til Gauja (Guðjóns) þar sem hann rekur á hana smiðshöggið. Seinna mæti ég á Melgerðismela í nokkur skipti þar sem GUðjón kennir mér að fljlúga og eftir að hafa lent tvisvar tel ég mig geta farið heim í sveit og flogið sjálfur.
|