Æskan
Ég er fæddur og uppalinn til 16 ára aldurs
í Reykjadal í Suður-þingeyjarsýslu.
Ég
er frá sveitabæ sem er fremst í Reykjadal
upp á fallegri heiði. Þar liggja 5 býli
all þétt. Stafn, Vellir, Vallholt, Fellshlíð
og Fellshlíð 2. Ég bjó í Fellshlíð,
þar býr Hermann bróðir minn ásamt
konu sinni Önnu Geirlaugu. Aðalsteinn bróðir
minn býr í Fellshlíð 2 ásamt
konu sinni Guðlaugu og börnum þeirra. Alls erum
við 5 bræðurnir, Unnsteinn elstur, svo Aðalsteinn,
Ingóflur, Hermann og loks örverpið ég.
Ég og Unnsteinn erum búsettir á Akureyri
en hinir í Reykjadal, Unnsteinn dvelur mikið á
Laugum (í Reykjadal).
Ein af fyrstu mínum minningum er þegar Hermann
var að draga mig á snjóþotu, það
hefur greinilega verið afar spennandi fyrst ég man
það þó ég hafi ekki verið
líklega eldri en 3 ára. Jú svo man ég
eftir því þegar Hermann reyndi að drekkja
mér í andapollinum, við vorum saman á
fleka sem var búinn til úr dráttavélardekkslöngu
og krossviðarplötu ofaná, svo var kústskaft
notað til að ýta sé áfram. Ég
datt af og var á bólakafi og Hermann náði
andlitinu uppúr með því að krækja
kústskaftinu í úlpuhettuna og lyfta mér
upp úr. 
Ég lék mér mikið einn, átti
enga jafnaldra í Stafnshverfi, Geiri (Hólmgeir S.) á
Völlum er 5 árum eldri en við lékum okkur
annað slagið saman. Þórey dóttir
Aðalsteins bróður er þremur árum
yngri en ég en við náðum aldrei að
verða leikfélagar, skrítið en satt, en
í staðinn notuðum við hvert tækifæri
til að rífast eins og hundur og köttur.
Unglingsárin
Sumarið eftir fermingu keypti ég mér skellinöðru
og notaði hana grimmt til að komast "út
í dal" og hitta vinina. Það var körfuboltamenning
í gangi þá og fóru flest sumarkvöld
í það að spila einhversstaðar körfu.
Það kom fyrir að það var farið í
heiðarferðir og voru það jafnan mikil ævintýri.
Ég hlýt að hafa góðan verndarengil
vegna þess að ég ætti að vera löngu
dauður eftir að hafa átt þessa skellinöðru.
Sumarið þegar ég var 16 (1995) þá
fluttum við til Akureyrar og ég fór í
VMA. Ekki nennti ég að læra mjög mikið
en gekk ágætlega samt. Þennan vetur fékk
ég bílpróf og viku seinna var haldið
ásamt félögum á Prodigy tónleika
í Laugardagshöll, það var ævintýraferð
sem gekk vel, fórum á ónýtri Skóda
bifreið sem stóð sig ágætlega samt.
Það hvellsprakk á ljósum í Rvík
og fleira sniðugt en það var bara til að krydda
tilveruna. Sumarið eftir vann ég í sundlauginni
í Mývatnssveit, nánar tiltekið í
þorpinu. Það var minnisstætt sumar. Ég
bjó í kennslustofu á 2. hæð í
skólanum þar, sem er við hliðina á
sundlauginni og svona 100 metra frá þorpinu sjálfu.
Ég spilaði stundum á barnum á kvöldin
og tók borgunina útí öli. Þetta
er ekki til að státa sig af. Ég skil ekki
enn hvernig mér tókst að eyða sumarkaupinu
jafnóðum, því ég þurfti
ekki að borga fyrir húsnæði eða af
bíl.
Þetta sumar yfirgaf Nikulás Halldórsson okkuri.
Blessuð sé minning hans.
Veturinn eftir var ég að vinna á
kvöldvöktum á Skinnaiðnaðinum. Þá kynntist ég barnsmóður minni. Hér læt ég lokið kaflanum
um unglingsárin og held áfram í kaflanum
fullorðinsárin.
Fullorðinn
Eftir
6 mánuði í Skinnaiðnaðinum hætti
ég þar, og farinn að búa. Um sumarið vann ég
í Krossanesi og fram á haust. Þá flutti
ég í Lauga og vann í Laugafiski fram á
vor. Þá fór ég aftur til Akureyrar og fékk vinnu það sumar í
Kristjánsbakarí, það var frábært,
þarna var ég 18 ára. Um haustið tók
ég eina önn á Félagsfræðibraut
í VMA. Rétt fyrir jól fékk
ég vinnu í Ásprent/pob við skönnun, litgreiningu og hönnun, þá byrjaði nýtt tímabil
í lífi mínu. Í febrúar 1999 fæddist
Pétur
Ívar. Pétur í höfuðið á
föður mínum og Ívar í höfuð
á 2 frændum Ástu, Ívari frá
Skógarseli og Ívari Björnssyni. Ég keypti íbúð 1999 og seldi hana í
febrúar 2003. Ég vann mikla yfirvinnu og var þá
kominn með mikla tölvudellu. Þegar ég
kom heim
eftir vinnu fór ég jafnan í tölvuna
og var þá í tölvu þegar augun
voru opin. Við Ásta slitum samvistum febrúar
2002. Í ágúst 2002 breytti ég til
og hóf störf hjá góðu netfyrirtæki
sem hét Skrín sem var svo seinna keypt af Skýrr og nú EJS á Akureyri þar sem ég starfa í dag sem sérfræðingur. 1. júní 2003 flutti Guðfinna mín til mín þar sem ég leigði í Holtagötunni og haustið sama árfluttum við í Örk Eyjafjarðarsveit. Vorið 2004 fluttum við í Eyrarlandsveg 12 þar sem við bjuggum ásamt kettinum Skotta þar til 1. júlí 2007 en þá keyptum við efri hæðina í Bjarmastíg 3. Pétur Ívar er hjá okkur reglulega og stundar nám við Stórutjarnaskóla. Guðfinna nemur við Myndlistarskólann á Akureyri. Lítið á heimasíðuna hennar Guðfinnu á www.gudfinna.net
Síðast breytt 1. apríl 2009

Hér eru nokkrar myndir þar sem egóisminn og hégóminn
nýtur sín... 


|